Baddý systir fór til köben
Baddý systir fór til köben í gær, ég og jr skutluðum henni og ástu vinkonu hennar út á völl og hún fékk það veganesti að koma við í HM-baby úti og versla föt -bland í poka- á drenginn. ég sakna þess ótrúlega að hafa ekki Hennes og Mauritz hérna heima, það er eina verslunin sem vantar í flóruna hér, fyrir utan Starbucks kannski en þar sem ég drekk ekki kaffi er mér nokk sama. á laugardaginn förum við svo norður og ætlum að vera í viku. í dag kláraði ég að þvo þvott sem fer ofan í tösku á morgun. það verður fínt að komast norður.
Fimmtudagur 10. júní 2004 kl. 22:48
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

