það er einstaklega lítið sem
það er einstaklega lítið sem ég get sagt hérna þessa dagana. Jr. stækkar á geysimiklum hraða, ég vildi að ég hefði þennan 1cm á viku hæfileika. ég er líka að detta inn í húsmóður-rútínuna þar sem frítíminn þegar drengurinn sefur fer í að setja í vél / brjóta saman þvott / setja í uppþvottavélina / skipta á rúminu ect. Einkar ljúft líf.
Hins vegar reyni ég að detta ekki úr dísæn-gírnum; var að uppfæra myndabloggið og hef ýmislegt á prjónunum til að lífga upp á þessa síðu. Semsagt redú fljótlega.
Þriðjudagur 01. júní 2004 kl. 21:21
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
já vá, þegar sólin skín svona inn um gluggann þá sé ég ekkert á skjáinn, og hvað þá þetta brúna layout, sem mér finnst annars frekar vel heppnað. þó ég segi sjálf frá

