hvað varð um ásu?
hvað varð um ásu?
who's that girl
í mogganum um helgina sá ég mynd af stelpu sem á svo að vita hver er, ég bara man ekki hvar ég hef séð hana áður. það er frekar pirrandi. ég er að reyna að hugsa.. hún var ekki í MA, örugglega ekki í LHí en var hún í sálfræðinni í den þegar ég var þar? eða hefur hún kannski bara unnið hjá sjónvarpinu eða afgreitt í einhverri búð sem ég hef farið í? eða komið sem viðskiptavinur einhversstaðar þar sem ég hef verið að vinna og hefur ekki hugmynd um hver ég er? Já þetta er frekar pirrandi.
snilldin eina
það er alltaf gaman, þrátt fyrir allt, þegar nýjir vefir eru að koma upp. í fréttablaðinu í morgun sá ég að snilld.is
er leið spron til að höfða til unga fólksins. Svona vefir virka bara í stuttan tíma því þeir verða strax svo lummó, þrátt fyrir það er engin ástæða til að vanda sig ekki. Ekki svo mikil snilld.
skápurinn
ég hef ætlað að tæma fataskápinn í vinnuherberginu síðan um jólin en það er eingöngu drasl í honum sem á að fara niður í geymslu eða út í rusl (sbr einn gamall non-compatible-anymore skanni) en það lengsta sem ég hef komist í því er að opna dyrnar á skápnum. Ekki það að mér fallist hendur því það er ekki svo mikið í honum, heldur er þetta eitthvað svo óþolandi leiðinlegt að ég gæti ælt. þess vegna fresta ég þessu fram og til baka. Kannski drullast ég til að taka til í þessum skáp næst þegar ég á að gera skattaskýrsluna, þá gerir maður allt þetta leiðinlega sem maður er búinn að treina allt árið. Bara verst ef fötin hans Danna eru útum allt þangað til.
á sunnudaginn var haldin hér
á sunnudaginn var haldin hér síðbúin skírnarveisla til heiðurs honum Daníel. á boðstólum var dýrindisréttur #686 (kickass!) og #349 örlítið breyttur en þrusugóður þó -ásamt sörunum frá tengdó sem hafa aldrei klikkað. Kransakökuafgangurinn gleymdist þó fyrir norðan og ég vona að ma og pa hafi nartað í síðustu hringina.
oh, men! (hristir hausinn)
oh, men!
(hristir hausinn)
sól sól skín á mig...
góða veðrið um daginn fékk mig til að stoppa í apótekinu og versla sólarsprey og aftersun alveg dýrum dómi, er ekki mikið fyrir nivea dót. Svo vakna ég í morgun og það fyrsta sem ég heyri er að líklega muni snjóa á ferðamenn í dag.. reyndar uppi á hálendinu en mér er sama! þetta er alveg óþolandi land. Mundi! sendu mér smá af þinni sól!!
stafsetningarkunnátta M$ manna
það var ákaflega gott að
það var ákaflega gott að vera fyrir norðan. Gaman að hitta allt fólkið og sýna litla snáðann sem var skírður á þjóðhátíðardaginn í kirkjunni sem við óli vorum bæði skírð í. Maður fær svolítið nýja og öðruvísi sýn á heimaslóðirnar þegar maður kemur með barn þangað. Núna er Lilja systir hans óla flutt norður með sína kjarnafjölskyldu og Baddý systir fer norður í skóla í haust. það er ekki spurning hvort heldur hvenær...
FíT
í haust verður haldin risa sýning í hafnarhúsinu á vegum FíT, félags íslenskra teiknara um grafíska hönnun á íslandi. Raggi félagi minn er að safna saman efni og ég var að klára að setja saman á disk eitthvað af því sem ég hef gert undanfarin ár í von um að eitthvað af því gæti ratað inn á þessa sýningu. þar á meðal eru nokkur vefútlit sem ég hef gert fyrir mig persónulega frá 1999, alls 102 mismunandi útlit. það er nördalega há tala.. og fer hækkandi.
En þetta verður rosalega merkileg sýning og það á víst að gefa út einhvern svaka doðrant í tengslum við hana.
Við jr. fáum okkur smá labbitúr í hádeginu á morgun og skilum diskinum.
Baddý systir fór til köben
Baddý systir fór til köben í gær, ég og jr skutluðum henni og ástu vinkonu hennar út á völl og hún fékk það veganesti að koma við í HM-baby úti og versla föt -bland í poka- á drenginn. ég sakna þess ótrúlega að hafa ekki Hennes og Mauritz hérna heima, það er eina verslunin sem vantar í flóruna hér, fyrir utan Starbucks kannski en þar sem ég drekk ekki kaffi er mér nokk sama. á laugardaginn förum við svo norður og ætlum að vera í viku. í dag kláraði ég að þvo þvott sem fer ofan í tösku á morgun. það verður fínt að komast norður.
just my luck
týpískt, Topshop að koma með óléttufatalínu núna!
það er einstaklega lítið sem
það er einstaklega lítið sem ég get sagt hérna þessa dagana. Jr. stækkar á geysimiklum hraða, ég vildi að ég hefði þennan 1cm á viku hæfileika. ég er líka að detta inn í húsmóður-rútínuna þar sem frítíminn þegar drengurinn sefur fer í að setja í vél / brjóta saman þvott / setja í uppþvottavélina / skipta á rúminu ect. Einkar ljúft líf.
Hins vegar reyni ég að detta ekki úr dísæn-gírnum; var að uppfæra myndabloggið og hef ýmislegt á prjónunum til að lífga upp á þessa síðu. Semsagt redú fljótlega.
1