tv á sumardegi
snilldarveður! Við fórum út með guttann í fyrsta skipti í gær í labbitúr og svo aftur í dag. Ef þetta heldur svona áfram þá förum við áreiðanlega aftur á morgun.
á miðri ægissíðunni föttuðum við að við ættum eftir að horfa á síðustu þættina af friends sem við sóttum í gær (og fórum þar með svo skemmtilega yfir á utanlandsdánlódinu þennan mánuðinn) svo við rukum heim og við tók síðasti klukkutíminn af vinunum góðu. ég get varla trúað því að þetta sé búið, af hverju? fyrst satc og nú friends..
það er huggun í harmi að það kemur einhver "joey þáttur" einhverntíman með haustinu eða á næsta ári.. Hins vegar fannst mér þessi endir mikið betur gerður heldur en satc um daginn, á síðustu 10 min af þeim þætti var eins og höfundurinn hefði fattað að það þyrfti endi svo hann (eða hún) batt bara hnút á allt og gerði alla hamingjusama á tíu mínútum. þau hjá friends vita að menn þurfa "closure".
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
hér er verið að vinna í því að ná í lokaþáttinn en með litlum árangri enn sem komið er .... ....en það kemur
Ef þið eruð einhvern tíma á göngu hér út eftir þá kíkiði endilega við, ég gæti boðið upp á kaffi ef veðrið er sérstaklega gott ;)

