sonurinn
ég held að það sé ekki hægt að eiga yndislegra barn. Hann er orðinn 10 daga gamall og er kominn með mikil skapgerðareinkenni, finnst gott að kúra, verður svaka æstur og hrínir og blæs ef hann fær ekki mjólkina sína strax og þegar honum líður vel horfir hann upp í loftið, setur í augnbrýrnar eða hrukkar ennið. Svo hnerrar hann nokkrum sinnum á dag eins og Baddý frænka hans. Sennilega gera þetta öll börn en manni finnst þetta svo sérstakt. ég sakna hans hreinlega þegar hann sefur.
Eins og sjá má þá verður sumartískan í ár sítt að aftan.
Flokkað sem uppeldi. Þar eru 47 færslur.
/ Álit
guð hann er svo mikil dúlla...:)
og vá ekkert smá þykkt og mikið hár!!!
gunna:
ó... ég get svo svarið það að ég er hálf öfundssjúk!
og já, hann er ekkert smá hárprúður :)
Anna Rut:
Til hamingju með strákinn :) Hann er alveg yndislegur, hafið það öll sem best.

