Mánuður er ógeðslega fljótur að

Mánuður er ógeðslega fljótur að lí­ða. á mánudaginn er óli búinn með fyrri partinn af fæðingarorlofinu sí­nu og þarf að fara í­ vinnuna aftur. Við jr. verðum þá ein að dóla okkur fram eftir degi og eins gott að sólin láti fara að sjá sig svo maður geti farið í­ almennilega göngutúra og taka kannski eitthvað af myndum á þessum ferðalögum um bæinn í­ sumar. Annars langar mig rosalega að fara að uppfæra digital-véla-kostinn á bænum þar sem Canon græjan, sem þó hefur þjónað okkur vel, er komin til ára sinna og er bæði svifasein, orkufrek og "lí­tið-fjörleg". Spurningin er bara hvaða gripur myndi verða fyrir valinu. það er búið að tala um þetta fram og aftur á national team sem gerir mann ennþá heitari fyrir því­ að skipta. En hver veit hvað verður.


Föstudagur 21. maí 2004 kl. 15:20
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Sigurjón:

Ég hefði boðið þér mína 10D ef ég hefði ekki verið NÝ búinn að selja hana.

25.05.04 01:39