..ed is dead
þau hafa það ennþá. það var alveg kreisí loco gaman. Við Gunnsa rokkuðum frekar framarlega, á meðan að ólarnir voru aftar. ég glotti helminginn af tímanum sem var kannski ekkert rosalega rokk, en hverjum er ekki sama, ég var á Pixies. Hefði samt viljað meira af Bossanova, en hver kvartar eftir svona.
hakkari af guðs náð
Af 999 mögulegum samsetningum á seinni hluta kennitölu tókst mér að finna út kennitölu sonar míns
-í fyrstu tilraun!
Hagstofan ákvað nefnilega um síðustu mánaðarmót að takmarka leit í þjóðskrá við nafn og kennitölu og þar sem ég er ómótstæðilega forvitin langaði mig svo að vita kt. drengsins. þar sem hann er ekki kominn með nafn og "drengur ólafsson" virkar ekki í leitinni var eini sjensinn að giska á kennitöluna.
Fyrri hluti kt. hans er 220404 sem minnir mig óneitanlega á Baddý systur en hennar fyrri hluti er 040480 og seinni hluti hennar er 3239, mjög hljómfögur kennitala svo ég sló inn 2204043230 og viti menn.. niðurstaðan: drengur ólafsson
ég á ekki eftir að geta sofið í nótt.
Mánuður er ógeðslega fljótur að
Mánuður er ógeðslega fljótur að líða. á mánudaginn er óli búinn með fyrri partinn af fæðingarorlofinu sínu og þarf að fara í vinnuna aftur. Við jr. verðum þá ein að dóla okkur fram eftir degi og eins gott að sólin láti fara að sjá sig svo maður geti farið í almennilega göngutúra og taka kannski eitthvað af myndum á þessum ferðalögum um bæinn í sumar. Annars langar mig rosalega að fara að uppfæra digital-véla-kostinn á bænum þar sem Canon græjan, sem þó hefur þjónað okkur vel, er komin til ára sinna og er bæði svifasein, orkufrek og "lítið-fjörleg". Spurningin er bara hvaða gripur myndi verða fyrir valinu. það er búið að tala um þetta fram og aftur á national team sem gerir mann ennþá heitari fyrir því að skipta. En hver veit hvað verður.
Evróvisjón
Ekki gekk okkur vel í júró þetta árið, þó svo jónsi hafi staðið sig vel. Maður vissi þetta samt innst inni að lagið myndi ekki gera góða hluti en skemmtunin var ágæt og má segja að Gísli M. hafi bjargað kvöldinu með góðri lýsingu.
það sem við þurfum bara að gera er að koma af stað borgarastyrjöld á íslandi senda svo keppanda frá Eyjafjarðasýslu, þingeyjarsýslu, Múlasýslu, Húnavatnssýslu, Snæfells- og Hnappadalssýslu osfr. til að fá einhver stig í þessari keppni.
Eða senda Leoncie á bleikum nærbuxum.
svona gerum við er við...
Húsmæður landsins, sjáið þetta og lærið. Ein mesta snilld sem ég hef séð lengi.
það var ákveðin nostalgía að
það var ákveðin nostalgía að fara og sjá útskriftarsýningu krakkanna úr lhí í dag. Gíslína frænka var með sitt lokaverkefni þarna sem leit mjög vel út og svo held ég að grahö deildin hafi komið einstaklega vel út líka. Myndlistardeildin finnst mér yfirleitt vera svolítið mikið bleh, ég þarf bara að rölta þarna niðureftir og skoða þetta betur í næði einhvern daginn, það var svo klikkað mikið af fólki þarna í dag.
Samt er ótrúlega skrýtið að hugsa til þess að það er ár liðið frá því ég stóð í stórræðum.
tv á sumardegi
snilldarveður! Við fórum út með guttann í fyrsta skipti í gær í labbitúr og svo aftur í dag. Ef þetta heldur svona áfram þá förum við áreiðanlega aftur á morgun.
á miðri ægissíðunni föttuðum við að við ættum eftir að horfa á síðustu þættina af friends sem við sóttum í gær (og fórum þar með svo skemmtilega yfir á utanlandsdánlódinu þennan mánuðinn) svo við rukum heim og við tók síðasti klukkutíminn af vinunum góðu. ég get varla trúað því að þetta sé búið, af hverju? fyrst satc og nú friends..
það er huggun í harmi að það kemur einhver "joey þáttur" einhverntíman með haustinu eða á næsta ári.. Hins vegar fannst mér þessi endir mikið betur gerður heldur en satc um daginn, á síðustu 10 min af þeim þætti var eins og höfundurinn hefði fattað að það þyrfti endi svo hann (eða hún) batt bara hnút á allt og gerði alla hamingjusama á tíu mínútum. þau hjá friends vita að menn þurfa "closure".
snökt
í dag er í senn sorgar og hátíðar dagur. Síðasti þátturinn af SATC verður sýndur í kvöld. Konur um allt land sitja fyrir framan skjáinn í A laga pilsum með rós í hnappagatinu, cosmo í annari og vasaklút í hinni. á Big virkilega skilið að fá Carrie aftur? Alexandr er nottla soltið gamall og svo er hann ekki að skilja hvað það var erfitt fyrir hana að yfirgefa NY. En Big er búin að vera algjör skítur. Hvað finnst ykkur stelpur? Endar Carrie með Big eða Alexandr? Biðin er á enda en um leið, no more SATC.
það fjölgar víða..
Jonni fv. bekkjarbróðir eignaðist lítinn strák í gær og Vigdís vinkona á von á strák í september. Svo var ég að frétta að Bjarkey G-systir úr MA ætlar líka að eignast erfingja í haust. '04 árgangurinn ætlar því greinilega að vera sterkur.
sonurinn
ég held að það sé ekki hægt að eiga yndislegra barn. Hann er orðinn 10 daga gamall og er kominn með mikil skapgerðareinkenni, finnst gott að kúra, verður svaka æstur og hrínir og blæs ef hann fær ekki mjólkina sína strax og þegar honum líður vel horfir hann upp í loftið, setur í augnbrýrnar eða hrukkar ennið. Svo hnerrar hann nokkrum sinnum á dag eins og Baddý frænka hans. Sennilega gera þetta öll börn en manni finnst þetta svo sérstakt. ég sakna hans hreinlega þegar hann sefur.
Eins og sjá má þá verður sumartískan í ár sítt að aftan.
1