sí­ðasti vetrardagur

Hví­lí­kt dásemdarveður! það kallaði alveg á göngutúr. Fór með jakkann minn í­ lókal hreinsunina sem heitir Hraði.. sem er svo vitlaust nafn því­ jakkinn verður ekki til fyrr en á mánudaginn.
Svo ákvað ég að labba út í­ bakarí­ og fékk mér eina malt. Fletti fréttablaðinu á svölunum í­ páskahlýrabolnum með maltið og leyfði bumbunni að fá smá UV geisla.
Svo heyrði ég það, skelfilegu hljóðin sem fylgja vorinu og fær hjartað til að slá hraðar.. flugnasuð.
ég hata þetta hljóð svo mikið, jafnvel ef einhver er að klippa runnana sí­na með svona rafmagnsgræju fær hárin til að rí­sa.
og það magnaðist......
ég stökk upp, velti stólnum, veifaði fréttablaðinu eins og ég gat, hentist inn og skellti hurðinni á eftir mér..
áður en ég opnaði augun hlustaði ég hvort hljóðið væri þarna ennþá... þegar ég opnaði augun sá ég þá akfeitustu randaflugu sem ég hef séð; loðin, svört, sveimandi fituklessa með kransæðastí­flu. Hún var svo feit að hún náði varla að halda sér á lofti.
Hún horfði í­ augun á mér.. glerið skildi okkur að.
Svo flaug hún burt, örugglega hlæjandi einhverjum flugna-muhahha-hlátri yfir því­ hvað hún er máttug. damn her.
ég er ekki búin að opna hurðina aftur.


Miðvikudagur 21. apríl 2004 kl. 17:03
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

almar:

Já þær eru ömurlegar þessar hel#%$! randaflugur! Og ekki eru þeir skárri vinir þeirra geitungarnir. Þeir gerðu nú bú í herbergisglugganunm mínum 2x ! Bara af því að mér er ekki "vel" við þá.

21.04.04 17:38


Ása:

Þú hefðir átt að drepa hana, þetta var örugglega drotning sem á eftir að fjölga sér í sumar (og tölvert meira en þú sko)

21.04.04 17:55


Tryggvi R. Jónsson:

Engar flugur á pallinum hjá mér í allri sólinni. Ekki slæmur dagur til að eiga eina góða flösku af pallavíni ;)

21.04.04 17:59


batgirl:

vá mér byrjaði strax að klæja í nefið þegar ég las þetta...svona eins og mar fær þegar mar er í mývó og flugurnar í hámarki!!!

21.04.04 20:18


mundi:

hvaða hvaða - þessar íslensku hunangsflugur eru nú bara krúttlegar, enda getur maður fengið sér bangsa sem líta út eins og hunangsflugur. ég er hins vegar búinn að læra að hata mosquito flugur sem nærast á manni sér til gamans....

22.04.04 05:12


gunna:

Já ohhjjj .. þær hanga svoleiðis á svölunum hjá okkur og eru svo riiisavaxnar að Fífa þorir ekki einu sinni að éta þær! veit þær eru sauðmeinlausar greyin.. en ég vil ekki hafa þær inni hjá mér samt :(

merry summer samt :)

23.04.04 16:17


mundi:

ertu farin að eiga barnið?? af hverju er svona löng þögn hérna?

23.04.04 16:28


ljótur:

Má ég óska þér til hamingju með titilinn, móðir og til hamingju með soninn!

23.04.04 17:04


mundi:

til hamingju með soninn bæði tvö. Við hérna í Frakklandi sendum ykkur okkar bestu kveðjur og vonum að öllum heilsist vel

23.04.04 19:28


klittana:

til hamingju með litla prinsinn

25.04.04 10:13


hadda:

vúhú lítill maður, hlakka til að kíkka við!! Hreiðar Nói verður ánægður með það!
Vona að allt gangi vel! Kv. Hadda og H.N

25.04.04 11:45


Bjarkey:

Til hamingju með soninn. Kveðja frá Bjarkey & Guðmundi

25.04.04 13:46