páskar

Páskahátí­ðin var ákaflega róleg hérna megin. í­ dag gerðum við nokkuð sem við höfum ekki oft gert áður hérna heima.. bónuðum gólfið (ég held að óli sé í­ meira hreiðurgerðarstuði en ég, allavega sá hann um bón-ingarnar ;) þannig að núna fær maður ofbirtu í­ augun af gólfinu. very nice. á meðan bónið var að þorna snæddum við afganginn af páskamatnum; gæsabringurnar sem húsbóndinn veiddi um árið, smökkuðust alveg prýðilega.
Páskaeggið reyndist sí­ðan vera alltof lí­tið þegar það var opnað á sunnudaginn.. ég fór reyndar í­ hagkaup á lördag og þá voru öll páskaegg uppseld!! öll egg nema eitthvað kinder-drasl þannig að við létum okkur þetta nægja... enda kannski alveg nóg


Mánudagur 12. apríl 2004 kl. 23:48
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.