le petit prins
Síðustu dagar eru búnir að vera ævintýralegir. á sumardaginn fyrsta ákvað erfinginn okkar skyndilega að kíkja í heiminn. ég hefði ekki trúað því þegar ég vaknaði um morguninn (les. hádegi) að uppúr tíu um kvöldið væri litli bumbubúinn kominn í fangið á mér. þetta var alveg ótrúleg upplifun!
Við þökkum kærlega fyrir allar kveðjurnar sem hafa borist, tíminn flýgur ótrúlega hratt og fyrst í kvöld náðum við að setja myndir inn á vefsíðu prinsins.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Formlega til hamingju! maður þarf svo að berja dýrðina augum þegar færi gefst!
já enn og aftur innilega til hamingju
Auður gjéari:
Innilegar hamingjuóskir með erfingjann,
frábært að þetta gekk allt vel og það á örugglega eftir að halda þannig áfram,
þetta kallar maður sko sumargjöf í lagi
bestu kveðjur
Auður
Freyja:
Til hamingju með afmælið Dagný mín
Við systur erum ólmar í að kíkja á litla frænda......
og ykkur Óla líka sko...
Hafðu það úbergott í dag
F
afmæliskveðjur héðan

