þessi frægð...

í­ miðbæjarrúntinum mí­num í­ dag, þar sem ég kí­kti í­ vinnuna til að athuga hvort ekki væri allt í­ sómanum, lá leið mí­n inn í­ Eymundsson í­ austurstræti. þar kí­kti ég yfir tí­maritin og þegar þau voru ekki alveg að gera sig fyrir mig ákvað ég að fara á efri hæðina í­ hönnunarbókahilluna. þar rakst ég á eina bók sem ég var nýbúin að setja á óskalistann minn. Hún er núna komin af listanum og á náttborðið mitt og lofar mjög góðu. Svo rakst ég á aðra bók, WebDesignIndex nr 4 en útgáfu nr 2 keypti ég í­ Amsterdam um árið. Bókin inniheldur óteljandi mismunandi vefútlit frá ýmsum aðilum um allan heim og er flokkuð eftir litaskema. Af forvitni minni kí­kti ég í­ indexið aftast til að athuga hvort það væru einhverjir í­slendingar í­ henni og viti menn... stendur ekki bara nafnið mitt þarna! jessör. á bls 41 er sí­ðasta útlitið á þessari ræmu sýnt í­ allri sinni dýrð!
Sem þýddi að ég pungaði út fyrir þessari bók lí­ka og tók svo strætó heim.


Miðvikudagur 14. apríl 2004 kl. 00:13
Flokkað sem bækur. Þar eru 19 færslur.

/ Álit

Svanhildur:

Vááá. Það er aldeilis. Það eru fáir Íslendingar sem ná því að komast á prent í útlöndum. Þetta er nú aldeilis viðurkenning og ætli þetta þýði ekki líka að fullt af fólki um allan heim sem hefur áhuga á vefhönnun á eftir að kíkja inn á síðuna þína. Kannski verðurðu farin að hanna síður fyrir ríka fólkið í útlöndum áður en maður veita af.
Nú bíð ég bara eftir að sjá viðtal við þig í Maður er nefndur.

14.04.04 06:32


Tengdó:

Til hamingju með þetta, Dagný mín. Ég er sko stolt af þér, og ég veit að það er ekki að ástæðulausu að þú ert komin þangað. Vei, húrra.

14.04.04 11:29


batgirl:

þú ert ekki systir mín fyrir ekki neitt tíhí!!!:p

14.04.04 18:59


mundi:

þetta er vel - og verðskuldað - mörg húrra frá mér.

14.04.04 20:10


klittana:

frábært til hamingju með þetta:) maður er ekki svikinn að þekkja þig;þ

Hafðu það svo rosa gott...hvenær er svo á planinu að skjóta krakkanum í heiminn???

15.04.04 09:21


dagný:

þakka hlý orð í minn garð :)
stjana: á hverri stundu skal ég segja þér, en ég er óþolandi þolinmóð manneskja. mér finnst við samt góðar að stilla okkur inn á afmælismánuðina okkar :p hehe

15.04.04 17:26


Freyja:

Til lukku með þetta frænka góð, þetta er nú alveg magnað :)

16.04.04 18:54


klittana:

já ekki nóg með það að vera stilltar inn á afæmlismánuðina heldur líka þokkalega nálægast okkar uppáhalds dögum.

og blessuð sé minning hennar Monsu minnar sem átti sama afmælisdag og þú...þessi elska:)

hafðu það rosa gott...ég kem suður um mánaðamótin maí júní og þá ætla ég koma og kíkka á gripinn!!!

19.04.04 21:32