le petit prins
Síðustu dagar eru búnir að vera ævintýralegir. á sumardaginn fyrsta ákvað erfinginn okkar skyndilega að kíkja í heiminn. ég hefði ekki trúað því þegar ég vaknaði um morguninn (les. hádegi) að uppúr tíu um kvöldið væri litli bumbubúinn kominn í fangið á mér. þetta var alveg ótrúleg upplifun!
Við þökkum kærlega fyrir allar kveðjurnar sem hafa borist, tíminn flýgur ótrúlega hratt og fyrst í kvöld náðum við að setja myndir inn á vefsíðu prinsins.
síðasti vetrardagur
Hvílíkt dásemdarveður! það kallaði alveg á göngutúr. Fór með jakkann minn í lókal hreinsunina sem heitir Hraði.. sem er svo vitlaust nafn því jakkinn verður ekki til fyrr en á mánudaginn.
Svo ákvað ég að labba út í bakarí og fékk mér eina malt. Fletti fréttablaðinu á svölunum í páskahlýrabolnum með maltið og leyfði bumbunni að fá smá UV geisla.
Svo heyrði ég það, skelfilegu hljóðin sem fylgja vorinu og fær hjartað til að slá hraðar.. flugnasuð.
ég hata þetta hljóð svo mikið, jafnvel ef einhver er að klippa runnana sína með svona rafmagnsgræju fær hárin til að rísa.
og það magnaðist......
ég stökk upp, velti stólnum, veifaði fréttablaðinu eins og ég gat, hentist inn og skellti hurðinni á eftir mér..
áður en ég opnaði augun hlustaði ég hvort hljóðið væri þarna ennþá... þegar ég opnaði augun sá ég þá akfeitustu randaflugu sem ég hef séð; loðin, svört, sveimandi fituklessa með kransæðastíflu. Hún var svo feit að hún náði varla að halda sér á lofti.
Hún horfði í augun á mér.. glerið skildi okkur að.
Svo flaug hún burt, örugglega hlæjandi einhverjum flugna-muhahha-hlátri yfir því hvað hún er máttug. damn her.
ég er ekki búin að opna hurðina aftur.
feed me!
ég trúi því ekki ennþá hvað ég borðaði mikið í gær. Við fórum út að borða með vinnufélögum hans óla á Apótekið sem er alveg snilldar staður. án gríns þá erum við að tala um þríréttað plús sushi og maki á milli rétta og örugglega líter af vatni. ég held ég geti ekki borðað það sem eftir er vikunnar.
gæðablóð
Nýtt met var slegið í morgun þegar ég fór í síðustu blóðrauða (hemoglobin) mælinguna. Meinatæknirinn hafði aldrei séð jafn mikið blóðmagn í einni (og ekki svo stórri) manneskju að meðaltali yfir meðgönguna, fyrst 134, svo 136 og í dag... 139!! vúpaah..
..og nei, það er ekkert að gerast.
brauð dagsins..
Bakaði fyrirtaks skinkuhorn í dag, henti hveiti um allt eldhús og yfir sjálfa mig og klíndi deigi á öll þau eldhúsáhöld sem ég gat fundið. Afraksturinn bragðaðist vel og er dágóður slatti kominn í frystinn sem kemur sér vonandi vel á næstu vikum.. allavega stendur í öllum þessum gömlu húsmæðrabókum að maður eigi að eiga eitthvað svona í frystinum, ég hlýði bara enda þarf ég að lifa mig inn í hlutverkið.
það komu líka afskaplega ljúfir tónar frá uppþvottavélinni eftir athafnir dagsins. þarf að fá mér átómatíska bekkjartusku, eða svona mr proper kall sem þrífur í einni svipan.
sjóarinn mikli
Pabbi er frækinn sjóari en er þetta ekki einum of!
*nýtt*
naglbítarnir fengu líka andlitslyftingu í dag
með mýkstu tær í heimi..
ég fór í fótsnyrtingu á stofuna hennar Baddýjar systur í morgun og það var alveg ljúf stund. Núna eru leggirnir hárlausir og tærnar mjúkar og haldiði að ofan á allt saman hafi Baddý ekki bara gefið mér afganginn af páskaegginu sínu líka. ég tárast og græt.
þessi frægð...
í miðbæjarrúntinum mínum í dag, þar sem ég kíkti í vinnuna til að athuga hvort ekki væri allt í sómanum, lá leið mín inn í Eymundsson í austurstræti. þar kíkti ég yfir tímaritin og þegar þau voru ekki alveg að gera sig fyrir mig ákvað ég að fara á efri hæðina í hönnunarbókahilluna. þar rakst ég á eina bók sem ég var nýbúin að setja á óskalistann minn. Hún er núna komin af listanum og á náttborðið mitt og lofar mjög góðu. Svo rakst ég á aðra bók, WebDesignIndex nr 4 en útgáfu nr 2 keypti ég í Amsterdam um árið. Bókin inniheldur óteljandi mismunandi vefútlit frá ýmsum aðilum um allan heim og er flokkuð eftir litaskema. Af forvitni minni kíkti ég í indexið aftast til að athuga hvort það væru einhverjir íslendingar í henni og viti menn... stendur ekki bara nafnið mitt þarna! jessör. á bls 41 er síðasta útlitið á þessari ræmu sýnt í allri sinni dýrð!
Sem þýddi að ég pungaði út fyrir þessari bók líka og tók svo strætó heim.
..á diskinn minn?
ég komst yfir ansi ágætan disk um daginn, Something wrong með Bang Gang. Takið samt eftir því hvað lógóið þeirra minnir á trivial pursuit letrið. Mússíkin er samt góð.
Flokkað sem
afslappelse
ég þurfti að rífa mig á fætur í morgun til að sofa ekki yfir mig.. átti nefnilega að mæta í skoðun klukkan tólf á hádegi. það er nákvæmlega ekkert að því að lúra og kúra frameftir, samviskubitslaust. það var alveg nóg að gera á spítalanum þegar við komum þangað, það stefnir nefnilega í metfæðingar núna í apríl.. eins gott að við fengum að fara fljótlega heim aftur. Við fórum reyndar og fengum okkur hádegismat í Ostahúsinu á skólavörðustíg, get alveg fyllilega mælt með þeim stað.. létt í hádeginu.
páskar
Páskahátíðin var ákaflega róleg hérna megin. í dag gerðum við nokkuð sem við höfum ekki oft gert áður hérna heima.. bónuðum gólfið (ég held að óli sé í meira hreiðurgerðarstuði en ég, allavega sá hann um bón-ingarnar ;) þannig að núna fær maður ofbirtu í augun af gólfinu. very nice. á meðan bónið var að þorna snæddum við afganginn af páskamatnum; gæsabringurnar sem húsbóndinn veiddi um árið, smökkuðust alveg prýðilega.
Páskaeggið reyndist síðan vera alltof lítið þegar það var opnað á sunnudaginn.. ég fór reyndar í hagkaup á lördag og þá voru öll páskaegg uppseld!! öll egg nema eitthvað kinder-drasl þannig að við létum okkur þetta nægja... enda kannski alveg nóg
Guð er góður!
þetta er það besta sem ég hef heyrt lengi, kom í fréttablaðinu í dag:
„Niðurstöður nýrrar könnunar voru birtar nýlega en þær snúa að súkkulaðiáti og barneignum. Vísindamenn sem stóðu fyrir könnuninni fullyrða að konur sem bryðja súkkulaði á hverjum degi meðan þær eru barnshafandi eignist hamingjusamari börn en þær sem fúlsi við súkkulaði. Vísindamenn segja ákveðin efni í súkkulaði vekja vellíðan hjá fóstrinu og það leiði til þess að eftir fæðingu hlæi börn og brosi meir en ella. Könnunin var gerð í Helsinki þar sem 300 konur og börn þeirra voru rannsökuð.“
Say no more!
HP
Um leið og ég reif
Um leið og ég reif mig uppúr flensunni er óli lagstur, og auðvitað í stærstu fríhelgi ársins þegar veðrið er alveg tryllingslega gott. þá er ekkert annað en að hjúkra manninum með teppi, Lemsip og Tiger Woods á PS2.
oh!
þið vitið ekki hvað mig langar geeðveikt á sjugabeibs..
gó girl!
Velkomin í hópinn Freyja! Megir þú eiga langt og farsælt blogglíf framundan.
Páskadraumur
ég myndi fá mér páskaegg ef það væru framleidd egg úr dökku súkkulaði. ég sé fyrir mér að inni í því væri marsipansúkkulaði, djúsí rjómakaramellur, súkkulaðihúðaðar kaffibaunir, líkjörfyllt konfekt......úff, get bara ekki haldið áfram. Nema að Litla Syndin Ljúfa verði bara páskaeggið mitt sem er súkkulaðikaka með blautum kjarna.
Svo var sambýlismaður minn að benda mér á að það er hægt að fá páskaegg í Café Konditori Copenhagen, kannski maður kíki á það. Svo bendir óli líka á að það er ekki nauðsynlegt að borða páskaegg. ég blæs nú bara á svoleiðis vitleysu.
ákvað að skrifa saman á
ákvað að skrifa saman á disk nokkur af mínum uppáhalds píanólögum, Chopin og fleiri snillinga, og setja ofaní tösku en þegar skrifarinn neitar öðru en að skrifa á 4x og gefur frá sér hátíðniýl þegar hann reynir að brenna á diskinn, er kannski spurning um að fara að uppfæra græjuna?
eggz
það er undarleg tilfinning að vera bara í fríi.
ég þreif íbúðina í gær og gekk frá restinni af barnafötunum, svaf svo fram að hádegi í dag og bakaði bananabrauð seinnipartinn áður en ég fór í jóga. Jógakennarinn sagði okkur svo að borða nóg af súkkulaði um páskana því það gæti lent á bannlista þegar barnið er komið í heiminn... 8l
neh, ég held að ég sé búin að venja það vel á súkkulaðibragðið að það hljóti að fara vel í magann á því. Annars tók ég hana á orðinu og keypti eitt NS#4 þegar ég kom við í krónunni á heimleiðinni. það er bara spurning hvort það nær að standa heilt uppi á hillu þangað til á sunnudaginn.
movable type spammmarar
þrátt fyrir að hafa uppfært MT í 2.661 er ég enn að berjast við róbóta sem spamma kommentakerfið hjá mér með miður skemmtilegum skilaboðum. það þýðir afskaplega lítið að setja viðkomandi ip tölur á bannlista þó það sé hægt því sennilega er aldrei sama ip talan notuð tvisvar. það er bara vonandi að nýja útgáfan af Movable Type geti lokað einhverjum holum því þetta er að verða jafn pirrandi og ruslpóstur.
TIL HAMINGJU MEð DAGINN!!
á þessum yndisfagra vordegi á litla systir mín afmæli. ég kom við hjá henni áðan og ætlaði að færa henni litla gjöf en þá var hún ekki heima, sagðist síðan vera í bíltúr og ekki svo þunn.... je right...
En litla dúllan er 24 ára í dag, hún nálgast mig óðfluga í aldri þessi snót.
Síðasti vinnudagurinn
Síðasti vinnudagurinn er liðinn og framundan er laaaangt "frí". Tja allavega frí frá skyldum utan heimilisins en tvöföld vinna tekin við hérna heimavið, svona á næstunni. Annars kvaddi ég hönnunarheiminn í bili með því að fara á verðlaunaafhendingu FíT í Hafnarhúsinu. Stofan mín fékk meira að segja ein verðlaun, fyrir besta merkið, sem var mjög gaman sérstaklega af því þar voru langflestar innsendingar.
það var eiginlega mjög tregablandin stund þegar ég tók saman dótið mitt af borðinu í vinnunni í dag. ég held ég sé ekki alveg búin að kveikja á þessu.
5