Mitt sósjal líf er voða
Mitt sósjal líf er voða mikið í bylgjum, eða kannski bara sprengjum. Eina vikuna er ekkert að gerast og þá næstu allt. Buðum þórdísi og Villa í mat á laugardagskvöldið, hitti Gunni og ásu í gærkvöldi, er í kvöld að fara í matarboð til Dísu og Villa og afmælisboð til Hildar vinnufélaga á eftir. Svo var ása elska að bjóða mér í bíó á einhverja Ashton Kutcher mynd á sexandthecitykvöldið. Mér finnst þetta æðislegt og er ekki að kvarta en væri alveg til í að dreifa þessu meira. ég geri ekki annað en að mjólka mig svo henti óli nýrri brjóstamjólk í morgun, eins og þetta sé bara hobbý hjá mér.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Bjarkey:
Já, þetta skemmtanalíf kemur nú einmitt oft í svona hollum hjá mér.. en ég þarf auðvitað ekki að "undirbúa" það svona vel. Er það ekki þá bara Óli skamm??!! Úpps!!!
eva:
júhú takk! ég var helvíti fúl, er svona að jafna mig.
Bara alveg nóg að gera hjá minni, en allt þetta í einni viku er nú kannski dálítið mikið, en bara að hafa gaman af, segi ég nú bara
Afhverju notiði mjólkina ekki bara útá kókópuffsið og í kaffið ? :)
. . Óli hefir kennski verið hræddur um að það myndi gerast og þessvegna hent henni - hehe

