hádegispælingar
í hádeginu fer ég oftast í 10-11 í austurstrætinu og finn mér eitthvað að borða, ef ég hef ekki verið svo séð að koma með nesti með mér. þetta er ekki langur spölur úr vinnunni en samt nóg til þess að ég tek yfirleitt eftir því hvað fólk starir á mig... ég er nú ekki vön að skera mig mikið úr fjöldanum svona á venjulegum dögum en mér finnst þetta orðið heldur áberandi. ég vona svona mín vegna að þetta eigi við um allar óléttar konur og að ég komi ekki til með að standa mig að þessu seinna meir því þetta getur verið mjög óþægilegt. Sumar fá kannski eitthvað kikk út úr því, veit ekki.
Mánudagur 15. mars 2004 kl. 13:43
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
hadda:
Þetta fannst mér´líka óþolandi, eins og maður væri eitthvað skrítinn...

