Mitt sósjal lí­f er voða

Mitt sósjal lí­f er voða mikið í­ bylgjum, eða kannski bara sprengjum. Eina vikuna er ekkert að gerast og þá næstu allt. Buðum þórdí­si og Villa í­ mat á laugardagskvöldið, hitti Gunni og ásu í­ gærkvöldi, er í­ kvöld að fara í­ matarboð til Dí­su og Villa og afmælisboð til Hildar vinnufélaga á eftir. Svo var ása elska að bjóða mér í­ bí­ó á einhverja Ashton Kutcher mynd á sexandthecitykvöldið. Mér finnst þetta æðislegt og er ekki að kvarta en væri alveg til í­ að dreifa þessu meira. ég geri ekki annað en að mjólka mig svo henti óli nýrri brjóstamjólk í­ morgun, eins og þetta sé bara hobbý hjá mér.

Miðvikudagur 31. mars 2004 kl. 14:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

da flu

það er frekar fyndið að um leið og maður er búinn að panta tí­ma hjá lækni, þá finnst manni maður ekki vera eins veikur.
ég kí­kti semsagt til hans árna heimilislæknis í­ gær, bara til að vera viss um að það sé ekkert alvarlegt í­ gangi sem gæti böggað bumbubúann og sem betur fer er þetta ekkert alvarlegt, bara hundleiðinlegt.. og er, sem betur fer, óðum að fara.

Þriðjudagur 30. mars 2004 kl. 11:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

[ R ]

já, gleymdi einu sem ég gerði lí­ka í­ gær.. lí­fgaði reykjalin.com við... þó fyrr hefði verið.

Laugardagur 27. mars 2004 kl. 14:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

flensa dauðans

eftir ágætis gærdag hélt ég að þetta ætlaði ekki að verða neitt svakaleg veikindi en hósti og kvef satans eru búin að herja á mig í­ nótt og í­ dag. þetta er ömurlegt! ég hef ekki farið út úr húsi sí­ðan á miðvikudag og ekkert gert hérna heima (ok fyrir utan að hafa sett í­ 3 þvottavélar í­ gær) nema liggja eins og hræ og hósta eins og strompreykingarmanneskja og tala eins og vinkona mí­n Eartha Kitt. súrt.

Laugardagur 27. mars 2004 kl. 14:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

hmm..

ætli það sé óhollt að borða heilt bréf af SS spægipylsu á dag í­ nokkra daga.. þetta er unaðslega gott álegg!

Föstudagur 26. mars 2004 kl. 14:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur / 2

Egill sýnir það enn og

Egill sýnir það enn og aftur að hann er snillingur.

Föstudagur 26. mars 2004 kl. 12:09 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

sygepige

haldið þið að ég hafi ekki bara náð mér í­ einhverja flensu sem ég kæri mig ekki um að lýsa nánar en veldur því­ að ég er orkulaus með öllu. ég er búin að sofa í­ allan dag og ætla að sofa meira á morgun því­ næsta vika nægir til að binda lausa hnúta í­ vinnunni. Svo taka rólegheitin við aftur og svolí­till "me-time" áður en bumbubúinn lætur sjá sig -sem ég vona að sé bara kominn með öflugra ónæmiskerfi eftir daginn í­ dag.

Fimmtudagur 25. mars 2004 kl. 20:50 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

extreme makeover

hanna systir fékk nýtt langþráð útlit í­ kvöld.

Mánudagur 22. mars 2004 kl. 23:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

fari spammarar í­ rass og rófu!

Undanfarið hef ég verið að henda út allskonar ógeðiskommentum sem hefur verið spammað á bloggið og bara núna áðan gerði ég það sem ég hef lengi ætlað að gera.. uppfæra MT-ið. þetta þýðir samt að við tækifæri þarf ég að fara í­ gegnum nokkrar færslur og eyða þessum óþverra út.

Mánudagur 22. mars 2004 kl. 21:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

undirbúningur sannleikans

36 vikur komnar á morgun, jibbí­jey þetta styttist. Við komum heim með kerruvagninn sem við keyptum af Siggu frænku, vorum komin með svalavagninn, sem ég er að verða búin að þvo, og fengum okkur bí­lstól fyrir helgi í­ ofurbúðinni babysam. ég á tvær vikur eftir í­ vinnunni og eftir það hugsa ég að ég sofi í­ nokkra daga og svæli svo krakkann út með páskaeggjaáti.

Sunnudagur 21. mars 2004 kl. 21:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi

helgin

ég bjóst ekki við því­ að fara aftur norður yfir heiðar þegar ég fór um daginn en núna um helgina vorum við fyrir norðan að kveðja hana ömmu mí­na sem var jörðuð á föstudaginn. það var ákaflega falleg athöfn og gott að hitta fjölskylduna aftur.

Sunnudagur 21. mars 2004 kl. 20:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

djöfull væri gaman að fara

djöfull væri gaman að fara norður og á naglbí­ta tónleikana .

Þriðjudagur 16. mars 2004 kl. 14:13 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

namm namm

Við hjónin fórum í­ fylgifiska eftir ungbarnasund í­ gær...vá! Kokkurinn þarna er guð. Keyptum smá af humarforrétti með saffran, sem var rándýr en hver vill ekki smakka humar og saffran. þetta var guðdómlegt. Svo voru keyptar silungssteikur með sesamfræjum og kóriander, það var bara snætt með kús kús með smá ekta smjöri saman við O! my! god!
Tilvalið þegar maður er með gesti í­ mat. Las það í­ Elle decoration að það er inn að leggja vel á borð og skreyta, helst svona soltið barrokk og panta svo bara tilbúin mat. Himnesk upplifun og úber kúl.

Þriðjudagur 16. mars 2004 kl. 14:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur

hádegispælingar

í­ hádeginu fer ég oftast í­ 10-11 í­ austurstrætinu og finn mér eitthvað að borða, ef ég hef ekki verið svo séð að koma með nesti með mér. þetta er ekki langur spölur úr vinnunni en samt nóg til þess að ég tek yfirleitt eftir því­ hvað fólk starir á mig... ég er nú ekki vön að skera mig mikið úr fjöldanum svona á venjulegum dögum en mér finnst þetta orðið heldur áberandi. ég vona svona mí­n vegna að þetta eigi við um allar óléttar konur og að ég komi ekki til með að standa mig að þessu seinna meir því­ þetta getur verið mjög óþægilegt. Sumar fá kannski eitthvað kikk út úr því­, veit ekki.

Mánudagur 15. mars 2004 kl. 13:43 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

sunnudagsgöngutúr

Myndir úr gönguferðinni út í­ Gróttu í­ góða veðrinu í­ gær má sjá hér til hliðar. það er greinilegt að það er vor í­ lofti, sem er gott.

Mánudagur 15. mars 2004 kl. 12:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

shopping and stuff

það er lí­tið að gerast, allavega ekki mikið til að segja frá eins og augljóst er. Eva heldur uppi heiðri sí­ðunnar sem stendur.
Ef við hjúin erum ekki einhversstaðar úti að versla þá er ég sofandi inni í­ rúmi eftir vinnu. það er fátt þægilegra en góður blundur þessa dagana enda "byrgðin" orðin talsverð. það er samt merkilegt með þessar verslunarferðir að þær bera yfirleitt engan árangur. Til dæmis tókst okkur að fara í­ babysam, oliví­u og oliver og ikea í­ dag og koma tómhent heim.
Hagkaup bjargaði hins vegar deginum með dásamlegri nautasteik og skógarberjakökunni sem núna er í­ ofninum.

Laugardagur 13. mars 2004 kl. 20:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

pirr

Vá hvað það er orðið þreytt að hringja í­ fólk í­ útvarpinu og reyna að vera eitthvað fyndinn. Sérstaklega kaflinn þegar fólk er ekki búið að svara og útvarpsmaðurinn er að reyna að segja e-ð til að fylla upp í­ -so ten years ago! Talandi um pirrandi, Myndbandablaðið, Birta og fleiri gæðatí­marit státa af dásamlegum þýðingum. Hvernig væri að ná sér í­ stúdentspróf áður en maður fer að reyna að færa texta úr slúðurblöðum yfir á í­slensku.

Fimmtudagur 11. mars 2004 kl. 13:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

Sigurður Reynir er farin að

Sigurður Reynir er farin að blogga, sem er gott mál. Fyndnir bloggarar eru bestir.

Fimmtudagur 11. mars 2004 kl. 12:58 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

blogg um blogg

bloggið hennar ásu er í­ stúdentablaðinu.

Þriðjudagur 02. mars 2004 kl. 18:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið