update
það er ekki hægt að segja að það sé lítið að gera þessa dagana þó svo það fari ekki hátt hérna inni. Fyrir utan alla hreiðurgerðina heima þá eru verkefnin í vinnunni mjög mörg og spennandi, það er eiginlega synd að vera að fara í frí eftir nokkrar vikur þegar svo margt er að gerast þar.
Baðherbergið er að smella saman. Við eigum eftir að finna handklæðaslá og slíkt en skiptikommóðan er komin inn svo það er hægt að fara að raða í skúffurnar. ég held ég geymi það samt að þvo fötin sem við erum komin með, í nokkrar vikur, það liggur ekki svo mikið á þeim.. býst ég við.
Laugardagur 21. febrúar 2004 kl. 18:30
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

