Arkitektinn ólöf skrifar grein um
Arkitektinn ólöf skrifar grein um baðherbergi sem er mjög áhugaverð þar sem baðið okkar er ennþá nokkurn vegin "í vinnslu"...
Matur 2004
þessi helgi er búin að vera tileinkuð mat. í gær fórum við óli út að borða á cafe operu því Halla hafði gefið mér gjafabréf þar sem við ákváðum að nýta á meðan það var eitthvað pláss eftir í kviðnum á mér. Eftir dásemdar steik fékk ég mér þann mesta delisjuss eftirrétt sem ég hef vitað af.. (Sweet Suffle Sensation hefði einhver sagt). Ber, ávextir og hnetur í bland við súkkulaði suffle og vanilluís, ásamt þremur tegundum af sósu. Gvuð minn!
í dag rákum við nefið inn á matarsýninguna í kóp sem var ákaflega fín, allavega höfðum við ekki mikla lyst á kvöldmat.
B-S-ö
mér finnst ég hafa misst af bolludeginum, ég borðaði reyndar tvær bollur en það er allt of lítið.. ætli það sé opin einhver búð sem selur bollur núna?
ég sleppti líka saltkjötinu í gær og fór í engan búning og fékk ekkert nammi í dag.. kannski fæ ég smá suðusúkk ef ég syng fallega fyrir óla núna..
Flokkað sem
FireFox
ég get alveg fullkomlega mælt með nýja browsernum firefox, miklu flottari og betri en nokkurn tíman Explorer. það er nefnilega hægt að breyta lúkkinu á honum (ég er sökker fyrir svoleiðis fídusum). ég lenti samt í smá krísu með hann áðan.. ég nefnilega fann ekki afturábak og áfram takkana og í nokkrar mínútur var ég mjög hugsi yfir þessu en þegar ég fór að svissa um útlit og þannig þá hrukku þeir aftur inn.
þetta er held ég það mest spennandi sem hefur hent mig í langan tíma....
update
það er ekki hægt að segja að það sé lítið að gera þessa dagana þó svo það fari ekki hátt hérna inni. Fyrir utan alla hreiðurgerðina heima þá eru verkefnin í vinnunni mjög mörg og spennandi, það er eiginlega synd að vera að fara í frí eftir nokkrar vikur þegar svo margt er að gerast þar.
Baðherbergið er að smella saman. Við eigum eftir að finna handklæðaslá og slíkt en skiptikommóðan er komin inn svo það er hægt að fara að raða í skúffurnar. ég held ég geymi það samt að þvo fötin sem við erum komin með, í nokkrar vikur, það liggur ekki svo mikið á þeim.. býst ég við.
egils eða viking?
mjög svo áhugaverðar umræður eru komnar af stað um bjórstríðið áIcelandic National Team.
norðurferð
Eins og Eva sagði svo réttilega hérna fyrir neðan þá eru ólarnir á leið í veiði ásamt Siffa og Villa. Við ákváðum að grípa tvær flugur í einu höggi (fluguveiði?) og fara alla leið norður á nesið og nálgast allt þetta barnadót sem liggur heima og bíður eftir erfingjanum, enda líður tíminn svo óskaplega fljótt að það er eins gott að drífa þetta bara af. Kannski er föstudagurinn 13. ekki alveg besti dagurinn til að leggja af stað í langferðalag en við látum það ekki á okkur fá.
extreme makeover
Baddý systir fékk nýtt lúkk í kvöld, um daginn var það Mundi.. ætli Hanna verði ekki abbó núna?
var einhver að tala um mat..
fjörmjólk er best.... með feeeeeitri skúffuköku
baðherbergið
Baðherbergið er að smella saman þökk sé tengdó sem komu hérna yfir helgina og eru búin að vera þvílíkt dugleg. Vaskurinn er kominn upp og er tengdur þannig að núna er bara þetta skemmtilega eftir; að raða í hillur og hengja upp accessories.
ég gæli við það að kíkja í flísabúð og finna fallegar mósaíkflísar til að setja fyrir ofan vaskinn, bara til að fá svolítinn lit. það er samt ágætt að láta þetta allt gerast svona hægt og rólega, það er ekkert stress í gangi enda er nægur tími.
Pot-roasted Pork in White Wine
Pot-roasted Pork in White Wine with Garlic, Fennel, and Rosemary. Chardonney frá Chile. Tómat, mozzarella og basil salat. Heilir hvítlauksgeirar. Kertaljós. Cappuchino, hvítvín og súkkulaðiostakaka. Say my name.
á þessu heimili er fólk
á þessu heimili er fólk að kveikja á kókosgrilluðum kjúklingi hann er álíka góður og hnetupastað enda líka með hinni heilögu þrenningu, hvítlauk, engifer og chili. Svo er ég búin að uppgötva nýja heilaga þrenningu, tómatar, mosarella og basil, allt ferskt vitaskuld.
Síminn vaktar vefinn minn.
OK þetta er eitthvað dúbíus, korteri eftir að ég sendi inn síðustu færslu með símanum mínum þá hrökk netið í gang hérna! Við erum búin að hringja á klukkutíma fresti í þjónustunúmerið og tala við alla heimsins þjónustufulltrúa Símans en ekkert hefur gengið fyrr en nú.
Máttur bloggsins er óútreiknanlegur!
siminn sokkar
nu aetla ég að tala illa um simann! Teir eru ekki að standa sig að tengja adsl-id herna i vinnunni og beidnir virdast tynast milli deilda svo ad einfoldustu adgerdir eru ad taka marga daga. Vid hjalpum ter ad lata tad gerast pah! (Sent sem SMS)
Flokkað sem
baðherbergisbreytingar..
Tókum smá skorpu inni á baði í kvöld, afraksturinn má sjá í myndaalbúminu. Nú er það bara að kaupa sparsl og smyrsl og fara að pússa..
framkvæmdir
Eftir tvær ferðir í Ikea og eina í Húsasmiðjuna komum við heim með nokkra skápa, vask og blöndunartæki. Planið er að ráðast í smá framkvæmdir á baðherberginu á næstunni. Borðplatan verður sennilega ekki til fyrr en seinna í vikunni svo það er nægur tími til að mála og rífa út þetta gamla.
það eru ýmsar framkvæmdir annarsstaðar líka. Vinnustaðurinn var að flytja um helgina og er kominn í glæsilegt húsnæði. Við vorum þar á laugardaginn aðeins að hjálpa til við að snurfusa og svona og staðurinn er orðinn mjög glæsilegur. það er greinilegt að ég valdi ekki alveg rétta tímann til að fara í barneignarfrí því ég næ ekki nema 2 mánuðum til að byrja með á nýja staðnum. það verður þeim mun skemmtilegra að koma aftur.
Svo eru fleiri í framkvæmdum, Lilja systir óla og Svavar eru búin að rústa gamla eldhúsinu sínu og eru komin með splunkunýtt (Ikea auðvitað) eldhús sem er alveg að smella saman. Við rákumst einmitt á Svavar í verslunarleiðangri áðan. það er ekki hægt að segja annað en það sé framkvæmdagleði í kringum okkur.
1