vetur konungur
ég trúði því ekki í morgun hvað allt var hljótt. Gat það verið að það væri logn úti? Svei mér þá.
það er víst engin lognmolla fyrir norðan heldur alvöru norðlenskt óveður, sem á vonandi að fara að ganga yfir. ég sé það í anda að tveggja metra snjóalag félli yfir Reykvíkinga eins og var alltaf heima í minningunni. Mér finnst eins og alla vetur þegar ég var yngri hafi skaflinn bakvið hús náð upp að þakskegginu og finnst að svoleiðis eigi veturnir að vera.
Og ef þetta er ekki bara bíllinn þeirra Sigga og Guðnýjar þarna í skaflinum?
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
gunna:
var einmitt ad hugsa um thad, skaflarnir voru sko almennilegir i den. nadu upp a husthok og VA hvad thad var gaman tha. Undanfarid hefur vetur konungur matt skammast sin bara fyrir lelega frammistodu og hallaerislega skafla.. ef skafla skyldi kalla... :) annars er vodalega thaegilegt ad thurfa eki ad klofa snjoinn svosem, thetta var stemning samt a arum adur ad thurfa ekki ad fara i skolann...
einmitt, það er alveg ferlegt að það séu aldrei óveðursfrí hérna í borginni... Þessi tilfinning sem myndast þegar maður vaknar og veðrið er vont... skyldi maður komast í skólann.. ætli það sé ófært??... Einstök tilfinning.

