the last samurai

í­ gær fórum við og sáum sí­ðasta samúræjann í­ bí­ó. það var ósköp notalegt að rölta upp í­ hverfisbí­óið í­ góða veðrinu í­ gær og myndin var ágætis afþreying lí­ka. það er allavega gaman þegar myndirnar koma einhverjum hugsunum af stað í­ kollinum á manni.
á eftir ætla ég hins vegar að gera aðra jógastöðvartilraun. í­ þetta sinn er það stöðin hans Guðjón Bergmanns, ég hef heyrt ágætis sögur af óléttujóganu sem konan hans kennir svo það verður gaman að prófa.


Þriðjudagur 20. janúar 2004 kl. 14:40
Flokkað sem video. Þar eru 47 færslur.

/ Álit

Hadda:

Mæli með stöðinni og þegar barnið kemur í heiminn tekuru það með þér.. Ég skellti mér með Hreiðar Nóa í tíma það var gaman! Bið að heilsa Jóhönnu vinkonu minni;-) og skilaðu til hennar að ég fari alveg að koma í heimsókn.
Kv. Hadda

20.01.04 16:10


mundi:

spurning fyrir mig að koma með - er ekkert sérstaklega léttur, nema þá í lund

21.01.04 06:29


mundi:

muniði eftir epladrykknum jóga??

22.01.04 16:01