ædol

þá er það idol í­ kvöld. við ætlum að kí­kja í­ mat til Lilju og Svavars og horfa svo á þáttinn sem allir tala um. Hver ætli það verði sem vinni?? Samkvæmt könnun á Femin.is þá verður það Kalli sjóari með yfirburðum. ég ætla samt að gefa önnu Katrí­nu mitt stig því­ mér finnst hún allra áhugaverðasti karakterinn, með fallegustu röddina svona þegar hún hefur stjórn á henni og hún er auðvitað norðlendingur. það telur þó svo Akureyringar þurfi að vera ansi mikið fleiri til að hún vinni.
Mér finnst samt mergjað að hafa svona sí­makosningu þar sem hringingin/sms kostar næstum hundrað kall og allir sem horfa gefa sitt atkvæði, jafnvel tvö.. við erum að tala um að kosningin á í­ kvöld á eftir að borga upp útlitsbreytingarnar sem Sí­minn gekk í­ gegnum í­ vikunni og vel það. Og allir eru hamingjusamir.


Föstudagur 16. janúar 2004 kl. 18:45
Flokkað sem video. Þar eru 47 færslur.