fishyfishy
Fiskur í hátíðarbúningi hefur aldrei klikkað svo við skelltum honum í ofninn.
föstudagsbrandarinn
Freyja sendi mér þennan:
Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér í glas. þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann í barþjóninn: - Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara?
á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: - "áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast - af því að þú ert nú blindur - að ég fræði þig um fáein atriði:
1. Barþjónninn er ljóshærð kona.
2. útkastarinn er ljóshærð kona.
3. ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate. .. Og ég er ljóshærð.
4. Konan við hliðina á mér er ljóshærð og er íslandsmeistari í lyftingum.
5. Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er íslandsmeistari í vaxtarrækt.
Hugsaðu þig nú vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?"
Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið og segir: "Nei, ætli það. Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum."
ekkert að gerast
æji vá ég er búin að vera allt of lengi að vinna í nýja vefnum..
það virðist vera að alltaf þegar ég sest niður hérna heima þá er eitthvað annað sem liggur fyrir og þegar ég ætla loksins að gera eitthvað í þessu þá finnst mér ekkert af þessu sem ég ætlaði að gera vera að virka.
kannski ég eigi bara að gera eitthvað allt annað þarna inni, ekkert stórt eða mikið.. bara eitthvað annað en ég hef verið að gera og gleyma öllu þessu gamla.
ég þyrfti eins og eina andvökunótt með nóg af góðri tónlist.
Eftir að hafa unnið frá
Eftir að hafa unnið frá átta til níu í gærkvöldi vona ég að dagurinn í dag verði aðeins rólegri. Flutningurinn í vinnunni fer á fullt núna þar sem búið er að mála og pússa og lakka. ég fría mig frá því að bera kassa og dót auðvitað og því í raun ekki mikið sem ég hef gert hingað til.
ég hlakka mest til að setjast í nýja stólinn við nýja 10fm skrifborðið og gera kósí í kringum mig, setja jafnvel upp einhverjar myndir..
Svo er kærkominn jógatími á eftir sem er algjör snilld, ég keypti mér nefnilega 3 mánaða kort hjá henni Jóhönnu, sem rennur út 15. apríl eða fjórum dögum fyrir settan dag... spurning hvort ég nái að halda það út allan tímann. spennó.
hún á...
Mamma mín á afmæli í dag. Til hamingju Mamma! :)
væntanlegt...
úff mánudagur. Helgin var góð en það er langt í næstu. Mánudagar eru samt fínir að öðru leyti. það er mikið að gerast í vinnunni minni því við erum að flytja í nýja húsnæðið í vikunni. það er búið að mála, parketleggja og koma fyrir nýjum stólum og skrifborðum, svo fæ ég nýja tölvu bráðlega og ný verkefni hrannast inn. Ekkert nema stuð þar.
Svo er reyndar allt í gangi hérna heima líka við að undirbúa væntanlega fjölgun, við ætlum aðallega að taka smá rasssíu (segir maður svona?) á baðherberginu, henda út skápnum og vaskinum og fá nýjan vask og skáp þar undir, og fá okkur svo kommóðu sem er með baði og skiptiborði. Svo er ég aðeins búin að kíkja á útsölur og kaupa nokkrar litlar flíkur sem allar eru svona semi uni-sex :) ég stóð mig að því í Mótor um helgina þegar ég var að skoða töskur að hugsa að þær hentuðu bara ansi vel sem skiptitöskur..
nýr tímaþjófur
the last samurai
í gær fórum við og sáum síðasta samúræjann í bíó. það var ósköp notalegt að rölta upp í hverfisbíóið í góða veðrinu í gær og myndin var ágætis afþreying líka. það er allavega gaman þegar myndirnar koma einhverjum hugsunum af stað í kollinum á manni.
á eftir ætla ég hins vegar að gera aðra jógastöðvartilraun. í þetta sinn er það stöðin hans Guðjón Bergmanns, ég hef heyrt ágætis sögur af óléttujóganu sem konan hans kennir svo það verður gaman að prófa.
ædol
þá er það idol í kvöld. við ætlum að kíkja í mat til Lilju og Svavars og horfa svo á þáttinn sem allir tala um. Hver ætli það verði sem vinni?? Samkvæmt könnun á Femin.is þá verður það Kalli sjóari með yfirburðum. ég ætla samt að gefa önnu Katrínu mitt stig því mér finnst hún allra áhugaverðasti karakterinn, með fallegustu röddina svona þegar hún hefur stjórn á henni og hún er auðvitað norðlendingur. það telur þó svo Akureyringar þurfi að vera ansi mikið fleiri til að hún vinni.
Mér finnst samt mergjað að hafa svona símakosningu þar sem hringingin/sms kostar næstum hundrað kall og allir sem horfa gefa sitt atkvæði, jafnvel tvö.. við erum að tala um að kosningin á í kvöld á eftir að borga upp útlitsbreytingarnar sem Síminn gekk í gegnum í vikunni og vel það. Og allir eru hamingjusamir.
vefmál
ég fór í dag í opnunarboð hjá útflutningsráði, þau voru að opna nýjan vef sem ég skipti mér örlítið af. það var fínt að koma þarna og hitta fólk sem ég hef unnið svolítið með og fyrir. Svo voru þarna líka gamlir samstarfsfélagar frá Origo sem var gaman að sjá framaní.
SíMINN.. sorgardagur í íslenskri hönnunarsögu
ég var í morgun að kíkja á þjónustusíður Símans vegna skráningar í símaskránna og þá var allt með kyrrum kjörum. þegar ég kíki svo núna í hádeginu hefur orðið sprenging.
Síminn er kominn með nýtt Company Image sem Gott fólk á sennilega heiðurinn að/af. ég veit ekki alveg hvort ég á að hlæja eða gráta. Mér finnst eins og það hafi verið unnið ótrúlegt skemmdarverk á þessu fyrirtæki og þeirri ímynd sem það hafði. það var reyndar alveg kominn tími á smá uppfærslu, smá litabreytingar og merkisbreytingar en mér finnst hafa gengið of langt. Merkið er leturgerðin Barmeno, örlítið teiknuð til en ótrúlega lítið þó (miðað við að það hafi örugglega kostað nokkuð marga þúsara) og litli sporðdrekinn við hliðina á því er eins og réttilega er bent á á INT miklu meira í takt við eitthvað HM merki í handbolta, þó svo það sé alveg hægt að rökstyðja það sem "stílfærða þrívíddarteikningu af hnetti og hnykki þannig á alþjóðlegri skírskotun". Svo er spurning hvernig menn ætli sér að setja það í pixel merki fyrir símaskjámyndina?
æji allt saman finnst mér þetta frekar sorglegt. Sérstaklega þegar gengið er of langt í óþarfa og sú sterka ímynd sem Síminn var búinn að byggja sér upp algjörlega brotin niður.
En þetta er kveisa sem er greinilega að ganga, sbr. ný merki Og Vodafone og KB banka. þar eru gömul og góð merki látin fara í hundana fyrir einhverja nýja bólu og virðist sem menn séu að undirbúa sig fyrir næsta hagvaxtarskeið og séu að þvo af sér gamlar syndir.
vetur konungur
ég trúði því ekki í morgun hvað allt var hljótt. Gat það verið að það væri logn úti? Svei mér þá.
það er víst engin lognmolla fyrir norðan heldur alvöru norðlenskt óveður, sem á vonandi að fara að ganga yfir. ég sé það í anda að tveggja metra snjóalag félli yfir Reykvíkinga eins og var alltaf heima í minningunni. Mér finnst eins og alla vetur þegar ég var yngri hafi skaflinn bakvið hús náð upp að þakskegginu og finnst að svoleiðis eigi veturnir að vera.
Og ef þetta er ekki bara bíllinn þeirra Sigga og Guðnýjar þarna í skaflinum?
wóa!
ómægod hvað Tetris yrði ánægður ef hann fengi svona búr.. Ofursvalt að hafa þetta uppi í hillu.
Ef einhver á kassa utan af Cube sem hann vill dóneita þá tek ég glöð á móti slíku!
Naglarnir komnir á vefinn
Vefur 200.000 Naglbíta fór í loftið frá mér um helgina þó svo það vanti ennþá töluvert inn á hann til að gera hann meira djúsí.
ég veit ekki hvað það er með mig og brúnan lit þessa dagana en allt sem ég geri endar á því að verða einhvernvegin grábrúnt..
ég tók líka portfolioið mitt niður í síðustu viku því ég var komin með dauðleið á því. ég ætla að breyta því svolítið mikið því það er ennþá með svona "Hire Me" blæ sem þarf ekki að vera lengur. Temp síðan endaði því líka á því að vera brúnleit. En það kemur vonandi eitthvað meira og nýtt kjöt á hann í vikunni.
Samkvæmt þessu er ég á
Samkvæmt þessu er ég á góðri leið með að búa til lítinn súkkulaðigrís.. ég er bara ekki alveg að leggja í það að fara að elda hafragraut. :S
nýr vefur
Nýtt lúkk sem ég gerði er komið upp fyrir Laugar, þetta er reyndar tímabundinn vefur með aðeins allra helstu upplýsingar og seinna verður farið í greiningu á nýjum og stærri vef. Kannski fæ ég að vera með í því, hver veit.
bítarnir bítast um verðlaun
ég var að kjósa Naglbítana á mbl til íslensku tónlistarverðlaunanna.
Sem minnir mig á það að ég þarf að klára vefinn þeirra.. *woopah*
úff
Mig dreymir þvílíka vitleysu þessar næturnar.. í nótt dreymdi mig að Amy á skjáeinum væri orðinn einn allsherjar siðlaus splatter þáttur, frekar óhugnalegt þó svo ég sé ekki mikill aðdáandi hennar. úff segi ég nú bara.
jóga
ég var að fatta að Anna jógakennari minn er búin að breyta tímunum í meðgöngujóga úr seinnipartstímum yfir í hádegistíma sem ég kemst ekki í. Eftir að hafa skoðað þetta smá þá fann ég að nýji staðurinn, Laugar, er með jóga seinnipartinn tvisvar í viku og tíminn er einmitt í dag. Kannski ætti maður bara að skella sér á eftir :)
Flokkað sem
gamlárskvöldsannáll
GLEðILEGT NýTT áR!!
ég er reyndar búin að hugsa svo mikið um árið 2004 að það er ekkert skrýtið að það sé loksins komið. ánægjulegt þó.
áramótin voru skemmtileg, við elduðum gæsabringur í myrkilsveppasósu (!) úr uppskriftabók Nýkaups, sem er ein besta kokkabók sem ég á held ég. Eftir matinn og annálaáhorf fórum við í Kópavoginn til óM og Evu, horfðum þar á skaupið og skutum svo upp einni bardagaköku og Gretti sterka. Rosa sjó þarna í Kópavoginum.
ég trúi því samt varla að þetta stóra frí sé að verða á enda, óli fór í vinnuna í morgun en ég fer ekki fyrr en á mánudaginn. það styttist því óðum í eðlilegt líf.
2