sunny seldur

ótrúlegt en satt, núna daginn eftir að við komum norður þá erum við búin að selja litla bí­linn okkar. Náungi á Akureyri keypti hann eftir að hafa séð myndirnar af honum í­ blöðunum og við afhendum hann sennilega á morgun. Við erum með tvo bí­la í­ sigtinu hérna í­ Toyota umboðinu á Akureyri svo það gæti farið svo að við myndum kaupa nýjan/notaðan Avensis á morgun lí­ka. það yrðu alveg ágætis jólainnkaup.
Allavega veit ég ekki alveg hvernig við komum okkur suður annan sunnudag, það er sjálfsagt seinnití­ma vandamál.


Sunnudagur 21. desember 2003 kl. 22:21
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.