þolláks

Við fórum seinnipartinn á nýja bí­lnum inn á Akureyri til að útbí­ta sí­ðustu jólagjöfunum til óla, Evu og Kormáks. óli gerði svo enn ein innkaupin og keypti sér nýjan sí­ma þó svo Nokia hafi þjónað honum ágætlega sí­ðustu 5 ár þá var hann orðinn slappur. Sí­minn sem hann valdi sér var af Sony Ericson gerð, með myndavél og alle græjer hugsa ég. Hann situr nú niðri á eldhúsbekk og safnar orku en óli er hins vegar niðri í­ kjallara að hamfletta þessar fjórar rjúpur sem hann átti eftir sí­ðan í­ fyrra, þær verða snæddar annaðkvöld ásamt skoskum stöllum sí­num.
ég sit hins vegar uppi og er að hugsa til Baddýjar systur sem er núna í­ bí­l að nálgast hina ófæru öxnadalsheiði. þar er ví­st engin blí­ða og ég veit ekki alveg hvernig farartæki hún er á en ég veit hins vegar að einhver hjálpar- eða björgunarsveit eða skátar eru þarna uppfrá að hjálpa til. Kannski það verði ævintýri í­ nótt, það er þá ekki í­ fyrsta sinn sem þorláksmessan fer illa með hana.
ég býð góða nótt og gleðileg jól því­ ég býst ekki við því­ að skrifa mikið á morgun :)


Þriðjudagur 23. desember 2003 kl. 23:23
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

batgirl:

þetta gekk nú líka svona súper dúper vel ég skil ekki hvað fólk var að kvarta...hef lent í verra veðri þarna og enginn skipt sér af því!!

02.01.04 19:32