:o ;O :o :I

En mikið óskaplega var erfitt að vakna í­ morgun. það fyrsta sem ég hugsaði var að rúmlega 2 vikna frí­ er framundan og það fékk mig til að standa á fætur í­ morgun.
Mig dreymdi alveg fáránlegan draum um handsnúna tí­mavél sem var gerð úr ljósmyndastækkara og einhverju fleira dóti, þá fór ég og hitti fullt af fólki þegar það var ungt.. það var samt eiginlega fólk sem ég hafði lí­tinn áhuga á að hitta, eða svoleiðis. Hví­lí­kt bull en örugglegasta fí­nasta hollywoodhandrit. Maður er nú bara þreyttur eftir allt þetta tí­maflakk.
*geysp*
óli fékk svo frí­ á mánudaginn þannig að við getum örugglega brunað norður um helgina, þeas ef við verðum ekki búin að selja undan okkur bí­linn.


Miðvikudagur 17. desember 2003 kl. 10:59
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

mundi:

handsnúin tímavél gerð úr ljósmyndastækkaraa??? er ekki allt í góðu dagný mín... :)

17.12.03 11:30


Dagný:

tja.. það mætti halda það.. ég mundi samt núna að árið var 1956, sá það á skjá með rauðum fleti..

17.12.03 11:48