jólaundirbúningur
ég held að það besta við jólaundirbúninginn séu mandarínur. þetta er eitthvað svo mikið mandarínu season því aldrei annars á árinu eru mandarínur eins góðar. ég held að ég borði svona ca 4 á dag, sem er ekki sérlega gott fyrir þennan andstyggilega brjóstsviða sem ég hef verið að fá, en ég læt mig hafa það.
Annars ganga jólaplönin ágætlega núna þegar það eru ekki nema 14 dagar til jóla og ekkert stress í gangi. það versta er reyndar að óli þarf að vinna þessa 2 daga og hálfan milli jóla og nýárs svo það er alveg óvíst hvar við verðum á gamlárskvöld. Líklegast er að við verðum bara saman hérna í bænum, fjarri norðlenskum veisluhöldum sem eru annars svo yndisleg. Lærdómurinn sem ég vil draga af þessu er að eiga eitthvað eftir af sumarfríinu eða fæðingarorlofinu fyrir næstu jólahátíð, enda verður hún væntanlega ennþá sérstakari en þessi í ár.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
hemúllinn:
jamm, mandarínur og síríus suðusúkkulaði með er hluti af aðventunni.
Mæli með sódavatni fyrir brjóstsviðann, það virkaði fínt á konuna mína á fyrri hluta meðgöngunnar, er að smella í sex mánuði núna
ég keypti einmitt mandarínukassa!!! Á diskinn minn.........korsískar dísætar jólamandarínur

