jólahlaðborðshelgi sem verður seint toppuð
Við hjónaleysin erum að jafna okkur eftir dúndur jólahlaðborðshelgi og kjötsviminn er svona smám saman að líða úr okkur. á föstudagskvöldið fórum við með mínu samstarfsfólki og nágrönnum í Bankastrætinu á giggið hans Bó á Nordica Hotel, sem var nú ekkert slor. Núna erum við hins vegar nýkomin heim úr jólaveislunni með vinnunni hans óla sem var haldin í Valhöll á þingvöllum. Veislan var rosalega fín, ég reyndi eins og ég gat að forðast kalda og hráa matinn en leyfði mér samt smá graflax og sósu og eftir súkkulaðimússsið fór sparkhetjan alveg á fullt span, sennilega í góðri vímu eftir allar kræsingarnar. Herbergið sem við fengum var mjög gott og eftir morgunmatinn fórum við öll í smá göngutúr í snjónum um svæðið sem hressti mann þvílíkt við. Núna er óli sofnaður fyrir framan Arsenal leik (ég veit hann myndi ekki sofna ef MU væru að spila) og ég hugsa að ég fari bara og klári að skrifa á jólakortin, nenni ekki alveg einhverju verslunarstússi. Semsagt, allt mjög rólegt hérna megin.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

