annar sunnudagur í­ aðventu

Jólaundirbúningurinn fer fí­nt af stað. Við Baddý gerðumst stórtækar og bökuðum tvær smákökusortir í­ gær, bæði mömmukökur og svona súkkulaðidropakökur sem eru svo jöömmí­ að þær eru að verða búnar. Enda er það svosem í­ lagi, þetta á nú að borðast!
Markmiðið er eiginlega að bæta á sig svona 5 kg um jólin, undarlegt að hugsa svona en ég má alveg við því­ akkúrat núna (tæplega 2kg komin eftir tæpa 5 mán). Auðvitað eiga þessi kí­ló að koma úr hollustu og fara á rétta staði en ekki öllu þessu gúmmelaði sem er í­ boði um jólin, en það er samt ánægjuleg tilhugsun að borða eins og mann lystir.
Svo hef ég reyndar verið að lesa það að óléttar konur megi ekki borða grafinn eða reyktan lax... (þe. hrátt kjöt eða fisk) ég gæti grátið því­ það er allt á kafi í­ dýrindis graflaxi heima um jólin. Kannski er þessi í­slenski í­ lagi, veit ekki en þyrfti að kanna það.
p.s myndir úr 20 vikna sónarnum sem við fórum í­ á miðvikudag eru í­ myndaalbúminu.


Sunnudagur 07. desember 2003 kl. 19:10
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

eva:

nibb íslenski laxin er ekki í lagi. þetta er út af listeríu bakteríu sem getur komið í svona hrá matvæli, sorrý :(

08.12.03 16:25


dagný:

uuuuuuuuhuhuuuu :´(

08.12.03 21:39


hadda:

Og passaðu þig á mygluostunum, þeir eiga víst að vera hættulegir ófrískum konum... ekkert rauðvín og ostar næsta árið:-)
Knús.
Hadda

09.12.03 00:51


ljótur:

og reykining við lágan hita líkt og köld marinering við greftun laxs veitir ekki fullnægjandi öryggi um að matvælin séu steríl

góður en harðbrjósta námsmaður sagði einu sinn:
"Þetta á bara auglýsa sem mat fyrir alvöru karlmenn; Reyktur lax hvorki fyir konur börn né gamalmenni.

10.12.03 20:21


ljótur:

og reykining við lágan hita líkt og köld marinering við greftun laxs veitir ekki fullnægjandi öryggi um að matvælin séu steríl

góður en harðbrjósta námsmaður sagði einu sinn:
"Þetta á bara auglýsa sem mat fyrir alvöru karlmenn; Reyktur lax hvorki fyir konur börn né gamalmenni.

10.12.03 20:21