Vensisinn skilaði okkur heilum heim

Vensisinn skilaði okkur heilum heim í­ gær, Baddý sat afturí­, eilí­tið þunn en ekkert sem sveittur staðaskálaborgari lagaði ekki.
Núna er hins vegar skollið á alvöru norðlenskt vetrarveður sem Reykví­kingar virðast ekki vera að höndla svo vel. Mér heyrist á öllu að þeir ætli að bí­ða með að ryðja göturnar þar til það hættir að snjóa, því­ það snjóar bara ofaní­ göturnar aftur og bærinn færi á hausinn ef það þyrfti að fara oftar en tvisvar yfir sömu götuna á snjóblásara... og á meðan sitja allir pikkfastir.

ég vona bara að við komumst niður í­ smárabí­ó í­ kvöld á LOTR því­ við keyptum miðana með jólainnkaupunum.

Mánudagur 29. desember 2003 kl. 14:04 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

þolláks

Við fórum seinnipartinn á nýja bí­lnum inn á Akureyri til að útbí­ta sí­ðustu jólagjöfunum til óla, Evu og Kormáks. óli gerði svo enn ein innkaupin og keypti sér nýjan sí­ma þó svo Nokia hafi þjónað honum ágætlega sí­ðustu 5 ár þá var hann orðinn slappur. Sí­minn sem hann valdi sér var af Sony Ericson gerð, með myndavél og alle græjer hugsa ég. Hann situr nú niðri á eldhúsbekk og safnar orku en óli er hins vegar niðri í­ kjallara að hamfletta þessar fjórar rjúpur sem hann átti eftir sí­ðan í­ fyrra, þær verða snæddar annaðkvöld ásamt skoskum stöllum sí­num.
ég sit hins vegar uppi og er að hugsa til Baddýjar systur sem er núna í­ bí­l að nálgast hina ófæru öxnadalsheiði. þar er ví­st engin blí­ða og ég veit ekki alveg hvernig farartæki hún er á en ég veit hins vegar að einhver hjálpar- eða björgunarsveit eða skátar eru þarna uppfrá að hjálpa til. Kannski það verði ævintýri í­ nótt, það er þá ekki í­ fyrsta sinn sem þorláksmessan fer illa með hana.
ég býð góða nótt og gleðileg jól því­ ég býst ekki við því­ að skrifa mikið á morgun :)

Þriðjudagur 23. desember 2003 kl. 23:23 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

bí­lamálin

Jólainnkaup ársins voru gerð í­ gær þegar við fórum í­ Toyota umboðið eftir að hafa selt Sunny um þrjúleytið í­ gær. Hálftí­ma seinna keyrðum við burt á semi-nýjum Toyota Avensis þar sem pláss er fyrir barnavagn, golfsett, tugi gæsa og meira til! Laglegt!

Þriðjudagur 23. desember 2003 kl. 14:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

sunny seldur

ótrúlegt en satt, núna daginn eftir að við komum norður þá erum við búin að selja litla bí­linn okkar. Náungi á Akureyri keypti hann eftir að hafa séð myndirnar af honum í­ blöðunum og við afhendum hann sennilega á morgun. Við erum með tvo bí­la í­ sigtinu hérna í­ Toyota umboðinu á Akureyri svo það gæti farið svo að við myndum kaupa nýjan/notaðan Avensis á morgun lí­ka. það yrðu alveg ágætis jólainnkaup.
Allavega veit ég ekki alveg hvernig við komum okkur suður annan sunnudag, það er sjálfsagt seinnití­ma vandamál.

Sunnudagur 21. desember 2003 kl. 22:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

vefurinn fyrir Mixa

Stofan mí­n var að opna vefinn sem ég er búin að vera að gera sl. mánuði. það er ótrúlega góð tilfinning að vera komin með hann í­ loftið þó svo vefir séu verkefni sem taka aldrei enda.

Föstudagur 19. desember 2003 kl. 10:53 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

:o ;O :o :I

En mikið óskaplega var erfitt að vakna í­ morgun. það fyrsta sem ég hugsaði var að rúmlega 2 vikna frí­ er framundan og það fékk mig til að standa á fætur í­ morgun.
Mig dreymdi alveg fáránlegan draum um handsnúna tí­mavél sem var gerð úr ljósmyndastækkara og einhverju fleira dóti, þá fór ég og hitti fullt af fólki þegar það var ungt.. það var samt eiginlega fólk sem ég hafði lí­tinn áhuga á að hitta, eða svoleiðis. Hví­lí­kt bull en örugglegasta fí­nasta hollywoodhandrit. Maður er nú bara þreyttur eftir allt þetta tí­maflakk.
*geysp*
óli fékk svo frí­ á mánudaginn þannig að við getum örugglega brunað norður um helgina, þeas ef við verðum ekki búin að selja undan okkur bí­linn.

Miðvikudagur 17. desember 2003 kl. 10:59 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

Sunny til sölu

æji, sjáið þið hver er hérna?
það er sárt að þurfa að selja hann því­ hann hefur reynst svo góður við okkur. Ef þig vantar traustan smábí­l lesandi kær, þá endilega hafðu samband!

Miðvikudagur 17. desember 2003 kl. 10:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

hann á afmæl' í­ dag....

Mig langar að óska afmælisbarni dagsins til hamingju með daginn.. ólafur Magnússon er árinu eldri í­ dag en lí­tur svo sannarlega ekki út fyrir að vera það! Til hamingju!

Þriðjudagur 16. desember 2003 kl. 13:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

Veit einhver annars hvaða gella

Veit einhver annars hvaða gella stal sí­ðunni hennar Höddu? Maður ætti kannski að breyta linknum til hliðar í­ hann Hreiðar Nóa

Sunnudagur 14. desember 2003 kl. 16:00 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

jólahlaðborðshelgi sem verður seint toppuð

Við hjónaleysin erum að jafna okkur eftir dúndur jólahlaðborðshelgi og kjötsviminn er svona smám saman að lí­ða úr okkur. á föstudagskvöldið fórum við með mí­nu samstarfsfólki og nágrönnum í­ Bankastrætinu á giggið hans Bó á Nordica Hotel, sem var nú ekkert slor. Núna erum við hins vegar nýkomin heim úr jólaveislunni með vinnunni hans óla sem var haldin í­ Valhöll á þingvöllum. Veislan var rosalega fí­n, ég reyndi eins og ég gat að forðast kalda og hráa matinn en leyfði mér samt smá graflax og sósu og eftir súkkulaðimússsið fór sparkhetjan alveg á fullt span, sennilega í­ góðri ví­mu eftir allar kræsingarnar. Herbergið sem við fengum var mjög gott og eftir morgunmatinn fórum við öll í­ smá göngutúr í­ snjónum um svæðið sem hressti mann því­lí­kt við. Núna er óli sofnaður fyrir framan Arsenal leik (ég veit hann myndi ekki sofna ef MU væru að spila) og ég hugsa að ég fari bara og klári að skrifa á jólakortin, nenni ekki alveg einhverju verslunarstússi. Semsagt, allt mjög rólegt hérna megin.

Sunnudagur 14. desember 2003 kl. 15:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

jólaundirbúningur

ég held að það besta við jólaundirbúninginn séu mandarí­nur. þetta er eitthvað svo mikið mandarí­nu season því­ aldrei annars á árinu eru mandarí­nur eins góðar. ég held að ég borði svona ca 4 á dag, sem er ekki sérlega gott fyrir þennan andstyggilega brjóstsviða sem ég hef verið að fá, en ég læt mig hafa það.
Annars ganga jólaplönin ágætlega núna þegar það eru ekki nema 14 dagar til jóla og ekkert stress í­ gangi. það versta er reyndar að óli þarf að vinna þessa 2 daga og hálfan milli jóla og nýárs svo það er alveg óví­st hvar við verðum á gamlárskvöld. Lí­klegast er að við verðum bara saman hérna í­ bænum, fjarri norðlenskum veisluhöldum sem eru annars svo yndisleg. Lærdómurinn sem ég vil draga af þessu er að eiga eitthvað eftir af sumarfrí­inu eða fæðingarorlofinu fyrir næstu jólahátí­ð, enda verður hún væntanlega ennþá sérstakari en þessi í­ ár.

Miðvikudagur 10. desember 2003 kl. 13:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

virkilega productive monday!

virkilega productive monday!

Mánudagur 08. desember 2003 kl. 23:32 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

annar sunnudagur í­ aðventu

Jólaundirbúningurinn fer fí­nt af stað. Við Baddý gerðumst stórtækar og bökuðum tvær smákökusortir í­ gær, bæði mömmukökur og svona súkkulaðidropakökur sem eru svo jöömmí­ að þær eru að verða búnar. Enda er það svosem í­ lagi, þetta á nú að borðast!
Markmiðið er eiginlega að bæta á sig svona 5 kg um jólin, undarlegt að hugsa svona en ég má alveg við því­ akkúrat núna (tæplega 2kg komin eftir tæpa 5 mán). Auðvitað eiga þessi kí­ló að koma úr hollustu og fara á rétta staði en ekki öllu þessu gúmmelaði sem er í­ boði um jólin, en það er samt ánægjuleg tilhugsun að borða eins og mann lystir.
Svo hef ég reyndar verið að lesa það að óléttar konur megi ekki borða grafinn eða reyktan lax... (þe. hrátt kjöt eða fisk) ég gæti grátið því­ það er allt á kafi í­ dýrindis graflaxi heima um jólin. Kannski er þessi í­slenski í­ lagi, veit ekki en þyrfti að kanna það.
p.s myndir úr 20 vikna sónarnum sem við fórum í­ á miðvikudag eru í­ myndaalbúminu.

Sunnudagur 07. desember 2003 kl. 19:10 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 5

mamma sendi mér þennan brandara:

mamma sendi mér þennan brandara:
Vitið þið af hverju það er ekki búið að gefa út frí­merki með Daví­ð Oddssyni ??
því­ sjálfstæðismenn myndu þá ekki vita hvora hliðina ætti að sleikja!

eeeheheheehe

Fimmtudagur 04. desember 2003 kl. 21:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt