veisluhelgi
Helgin hefur verið viðburðarík. Hún byrjaði með stórskemmtilegum aðalfundi Pjúsarafélags íslands. í gær var svo litla stelpan þeirra Lilju og Svavars var skírð og eftir athöfnina var mikið um kökudýrðir í vesturbænum. Skírnarbarnið Lára Hlín var afskaplega þæg og góð allan tímann eins og bróðir hennar, Páll Hlíðar, enda ekki við öðru að búast af þessum englum.
í gærkvöldi fórum við svo í afmælisveislu til Tryggva eftir að hafa heilsað örlítið upp á Evu, óla og Kormák. ég fór heim úr annars vel heppnaðri veislu um miðnætti en rumskaði eilítið klukkan hálf sex í morgun þegar aðrir heimilisbúar skriðu inn. Hvernig heilsan er veit ég ekki ennþá en það er allavega ekkert í koddanum.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
vertu góð við manninn dagný mín - hann þarf að drekka og djamma fyrir ykkur bæði núna.... ;)
ég get alveg staðfest það að hann tók hlutverk sitt mjög alvarlega í gærkvöldið og gerði þessu góð skil! Takk fyrir komuna bæði tvö :-)
dagný:
mundi: já, það er víst rétt.. jólabjórinn drekkur sig ekki sjálfur.
tryggvi: gott að heyra.. ég heyrði eitthvað muldrað í morgun um Orminn??
Ormurinn er kominn á Netið ;)

