skrýtið
það eru undarlegar hugsanir sem fara um mann þessa dagana. Kannski ekki skrýtið þegar maður er að búa til alveg splúnkunýja manneskju, fyrir utan það að hugsa hvernig þetta sé í ósköpunum hægt og hvað þetta ferli er ótrúlegt; frá því að vera innan við 1cm þegar við sáum það fyrst, í að vera orðið meira en 15 cm á nokkrum vikum, þá reynir maður að hugsa ekki til þess hvað ef allt klikkar, fer á versta veg?
Ef maður hugsar of mikið um það þá verður maður bara bilaður. Auk þess, eitt sinn voru allir í heiminum 17 vikna fóstur og ótrúlega margir hafa braggast alveg ágætlega.
Fimmtudagur 13. nóvember 2003 kl. 12:06
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

