síðan
ég veit, nýtt lúkk.. ég var komin með leið á hinu. þetta er kannski full dimmt og drungalegt en það var annaðhvort þetta.. eða eitthvað jóla!
mér finnst þetta skárra, sú mí.
það er ennþá fullt eftir að laga.. ég geri það annaðkvöld.
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.
/ Álit
erfitt að lesa letrið
Sammála síðasta ræðumanni, Linkarnir eru hins vegar í fínum lit, og smallprintið (daia kl...)
þetta er allt að koma, letrið orðið stærra og litirnir að verða réttir á flestum stöðum... það er ótrúlegt hvað þetta tekur samt stuttan tíma, þökk sé css og smá skipulagni.
Ah! Getting better all the time :-)
Það er ekkert hægt að lesa þetta, letrið fellur svo in í bakgrunninn
gúna:
ég get lesið þetta.. kannski búið að breyta síðan síðasta komment var sett inn. finnst eiginlega mjög þægilegt að horfa á þessa liti.. hlýtt og dimmt
dagný:
takk fyrir það Gunna mín, já það var eiginlega markmiðið.
ég held að Ása mín verði bara að smella á refresh.
Þegar ég var að skrifa lokaritgerðina mína (sem fjallaði um skjáletur) fann ég niðurstöður rannsókna sem bentu til þess að letur á skjá væri læsilegra þegar það er ljóst á dökkum fleti, öfugt við prentletur sem er læsilegra dökkt á ljósum fleti. Þetta er vegna þess að í prenti þá flæðir blekið inn á hvíta flötinn (pappírinn) en á skánum flæðir hvíti flöturinn (ljósið) yfir þann svarta, þannig að svart letur á hvítum skjánum virkar minna (mjórra) en ljóst letur á dekkri fleti á skjá, og þar með erfiðara til lesturs.
Þeir voru ekki al-vitlausir þeir sem hönnuðu DOS-ið :p

