jólaundirbúningur

enn er komin helgi og enn er hún farin aftur.
þetta er ótrúlega fljótt að lí­ða. ég bakaði þó eina sort í­ dag, kornflextoppa. Setti special k í­ þá svo það væri smá hollusta á móti stí­fþeyttum sykri og súkkulaði. ég held nefnilega að þeir séu mjög ví­tamí­nrí­kir núna, enda er súkkulaði lí­ka grænmeti/baunir.
Svo skrapp ég til Lilju mágkonu í­ morgun og hún gaf mér afganginn af grenigreinunum sem hún keypti fyrir aðventukransinn sinn. ég er ekki mikið fyrir að búa til svona kransa en skreytti litla habitat jólatréð með greninu í­ staðin. það kom alveg ágætlega út, ætli það verði ekki bara "aðventukransinn" á heimilinu.
Svo er 1. des á morgun og í­ fyrsta skipti á ævinni er ég ekki í­ frí­i þann 1. des. það er alveg ferlegt, þó það sé fí­nt og frábært í­ vinnunni þá höndlar það ekki samkeppnina við það að vera heima og slappa af.


Sunnudagur 30. nóvember 2003 kl. 23:37
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

Bjarkey:

Þú veist að það er álíka mikill sykur í Special K og í venjulegu, þó svo að það sé nánast fitulaust!!!!

01.12.03 09:08


mundi:

það er rétt - það jafnast ekkert á við það að vera í fríi!

01.12.03 10:11