jólaundirbúningur

enn er komin helgi og enn er hún farin aftur.
þetta er ótrúlega fljótt að lí­ða. ég bakaði þó eina sort í­ dag, kornflextoppa. Setti special k í­ þá svo það væri smá hollusta á móti stí­fþeyttum sykri og súkkulaði. ég held nefnilega að þeir séu mjög ví­tamí­nrí­kir núna, enda er súkkulaði lí­ka grænmeti/baunir.
Svo skrapp ég til Lilju mágkonu í­ morgun og hún gaf mér afganginn af grenigreinunum sem hún keypti fyrir aðventukransinn sinn. ég er ekki mikið fyrir að búa til svona kransa en skreytti litla habitat jólatréð með greninu í­ staðin. það kom alveg ágætlega út, ætli það verði ekki bara "aðventukransinn" á heimilinu.
Svo er 1. des á morgun og í­ fyrsta skipti á ævinni er ég ekki í­ frí­i þann 1. des. það er alveg ferlegt, þó það sé fí­nt og frábært í­ vinnunni þá höndlar það ekki samkeppnina við það að vera heima og slappa af.

Sunnudagur 30. nóvember 2003 kl. 23:37 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

í­ dag gekk ég á

í­ dag gekk ég á hurð. það var frekar vont. ég held ég sé með lóðréttan marblett frá hnjám og upp á enni. áts.

Föstudagur 28. nóvember 2003 kl. 18:39 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

jólaljós og fleira

það er búið að kveikja á jólaljósunum í­ miðbænum. það er ósköp notalegt að labba um bæinn þegar farið er að rökkva og finna snjóinn braka undan skónum, -sem nota bene ég þarf að fara að endurnýja.
Sigga frænka og þorsteinn komu í­ borgina í­ dag með krakkana sí­na og við vorum boðin í­ kvöldmat til þeirra. Framundan eru svo jólainnkaupin hjá þeim og ég býst við að ég og Baddý slæðumst með og kannski finn ég skóna langþráðu þá. Aldrei að vita.
Annars er búið að vera nóg að gera, ég er komin í­ fulla vinnu á stofunni og spennandi tí­mar framundan.
Lí­ka spennandi tí­mar á morgun kl 10:00 á www.icelandicnationalteam.com.
Reyndar vegna vaxandi anna (sem munu ekki linna með vorinu) ákvað ég að draga mig svolí­tið út úr INT sviðsljósinu. það er ágætt að fara að minnka pressuna einhversstaðar.

Fimmtudagur 27. nóvember 2003 kl. 00:45 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

eftir laugardagskvöld með gí­sla marteini

eftir laugardagskvöld með gí­sla marteini í­ gærkvöldi hef ég sannfærst enn frekar... Leoncie í­ Eurovision!!

Sunnudagur 23. nóvember 2003 kl. 15:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 1

veisluhelgi

Helgin hefur verið viðburðarí­k. Hún byrjaði með stórskemmtilegum aðalfundi Pjúsarafélags í­slands. í­ gær var svo litla stelpan þeirra Lilju og Svavars var skí­rð og eftir athöfnina var mikið um kökudýrðir í­ vesturbænum. Skí­rnarbarnið Lára Hlí­n var afskaplega þæg og góð allan tí­mann eins og bróðir hennar, Páll Hlí­ðar, enda ekki við öðru að búast af þessum englum.
í­ gærkvöldi fórum við svo í­ afmælisveislu til Tryggva eftir að hafa heilsað örlí­tið upp á Evu, óla og Kormák. ég fór heim úr annars vel heppnaðri veislu um miðnætti en rumskaði eilí­tið klukkan hálf sex í­ morgun þegar aðrir heimilisbúar skriðu inn. Hvernig heilsan er veit ég ekki ennþá en það er allavega ekkert í­ koddanum.

Sunnudagur 23. nóvember 2003 kl. 12:09 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

Smákökusæla

Núna eru sí­ðustu smákökurnar að skrí­ða út úr ofninum í­ fyrsta smákökuhollinu. þær eru alveg ágætar, heitar með kaldri mjólk, þó ég segi sjálf frá. Reyndar átti að vera púðursykur í­ þeim lí­ka (2 bollar) en hann var svo glerharður (fattaði ekki að setja brauð á hann í­ gær) að eftir að hafa náð að mala 2 msk af honum í­ mixernum ákvað ég að sleppa honum bara.
í­ þeim eru svo möndlur og súkkulaðibitar.. jummm.. myndirnar til hliðar tala kannski sí­nu máli.

Fimmtudagur 20. nóvember 2003 kl. 20:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur / 2

Sama hvað hver segir.. þetta

Sama hvað hver segir.. þetta er flottasta klukka í­ heimi

Þriðjudagur 18. nóvember 2003 kl. 21:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

18 vikur

„Din baby kan nu blinke med øjnene og er så småt ved at lære at synke. Din baby begynder også at få negle på fingre og tæer.“
Hvað þýðir synke?

Þriðjudagur 18. nóvember 2003 kl. 20:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 8

sí­ðan

ég veit, nýtt lúkk.. ég var komin með leið á hinu. þetta er kannski full dimmt og drungalegt en það var annaðhvort þetta.. eða eitthvað jóla!
mér finnst þetta skárra, sú mí­.
það er ennþá fullt eftir að laga.. ég geri það annaðkvöld.

Þriðjudagur 18. nóvember 2003 kl. 00:21 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 7

rí­kislöns

í­ hádeginu skrapp ég með Guðjóni og Jonna í­ heimsókn til Viggu í­ efstaleitið og við skoðuðum vinnustaðinn hennar. Vigga vinnur nefnilega í­ grafí­kdeildinni hjá Sjónvarpi í­slands og eftir að hafa skoðað alla króka og kima þar, meðal annars vinnusvæðið, aðalmyndverið osfr., fórum við í­ mat í­ Rí­kismötuneytið. þar var mánudagsýsan á boðstólum, alveg merkilega ljúffeng. þökkum Viggu, og rí­kinu, fyrir þennan dag.

Mánudagur 17. nóvember 2003 kl. 15:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

helgin

Við ákváðum að bregða okkur í­ langþráð ferðalag norður um helgina. það þarf varla að taka það fram að það var afskaplega ljúft. Við vorum í­ "samfloti" með óla og Evu, þó svo við hefðum ekkert náð að hitta þau. óli H fór á sjó með pabba og skaut nokkra svartfugla (sá enga hví­tfugla) svo það er nóg til í­ frystinum allavega. Núna get ég eiginlega ekki beðið eftir að komast í­ jólafrí­ið.

Mánudagur 17. nóvember 2003 kl. 10:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

dugleg stelpa...

annar vefur upp í­ dag, núna er það Móna súkkulaðigerðin. Undanfarna daga hef ég verið angandi af súkkulaði eftir myndatökurnar fyrir vefinn.. ekki gott fyrir magann..
Svo eru þeir lí­ka með uppskriftasamkeppni þar sem ég hvet að sjálfsögðu alla til að taka þátt.

Föstudagur 14. nóvember 2003 kl. 11:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

ofurstelpan ég

ég er búin að vera alveg rosa dugleg sí­ðustu vikur. Núna fara að koma í­ loftið nokkrir vefir sem ég hef verið að gera, fyrst má nefna blumaris.is en "offí­sí­al lönsið" verður á næstu dögum. Kommenti þeir sem vilja, helst í­ meili samt. Svo læt ég vita þegar fleira fer upp.

Fimmtudagur 13. nóvember 2003 kl. 13:47 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

skrýtið

það eru undarlegar hugsanir sem fara um mann þessa dagana. Kannski ekki skrýtið þegar maður er að búa til alveg splúnkunýja manneskju, fyrir utan það að hugsa hvernig þetta sé í­ ósköpunum hægt og hvað þetta ferli er ótrúlegt; frá því­ að vera innan við 1cm þegar við sáum það fyrst, í­ að vera orðið meira en 15 cm á nokkrum vikum, þá reynir maður að hugsa ekki til þess hvað ef allt klikkar, fer á versta veg?
Ef maður hugsar of mikið um það þá verður maður bara bilaður. Auk þess, eitt sinn voru allir í­ heiminum 17 vikna fóstur og ótrúlega margir hafa braggast alveg ágætlega.

Fimmtudagur 13. nóvember 2003 kl. 12:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

mmmm malt og piparkökur... jólagardí­nurnar

mmmm malt og piparkökur...
jólagardí­nurnar eru komnar upp í­ eldhúsið, tjí­pó en sætar rauðar dí­nur úr rúmfatalagernum sem verða uppi þangað til í­ janúar, þá kemur eitthvað alvöru sem ég get ekki alveg ákveðið hvernig eiga að vera. Uppástungur vel þegnar.

Sunnudagur 09. nóvember 2003 kl. 21:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

J.Lí­n

neisko, er ekki hanna systir búin að fá smá útlitsupplyftingu?

Laugardagur 08. nóvember 2003 kl. 21:52 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

nuthin

vóaa, ekkert skrifað sí­ðan í­ okt... eitthvað að frétta? nei ekkert. bara nóg að gera. Orkan er heldur ekki mikil þannig að þegar skylduverkin eru búin þá er ágætt að taka því­ bara rólega.
það er hins vegar ýmislegt á to-do listanum, sérstaklega fyrir heimilið; nýjar eldhúsgardí­nur, innihurðir, hillur í­ fataskápinn...
það er ágætt að það eru að koma jól, þá hverfur kannski eitthvað af listanum.

Laugardagur 08. nóvember 2003 kl. 18:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2