tónlist
nýja uppáhalds lagið mitt er með Ragnheiði Gröndal og er ástæða þess að ég skráði mig inn á tonlist.is vefinn og keypti lagið, enda kominn tími til að skoða almennilega þennan vef, sem meðal annars er tilnefndur til vefverðlaunanna 2003.
Mér finnst hann lúkka mjög vel, random grafíkin í hausnum er alveg að virka og icon eru til fyrirmyndar (kannski eilítið smá en það er töff þegar maður er sér ekki illa, þá er það pain!) en aðgangurinn finnst mér svolítið hnökróttur. á svona vef þar sem augljóst er að leit er mjög mikilvæg þá finnst mér frekar vont að þurfa að smella á "leit" og fara svo í einhvern glugga, af hverju ekki að hafa einfaldan leitarkassa og svo link í nákvæmari leit, eins og maður sér svo víða. Líka eftir að ég var búin að logga mig inn (og setja inn kortanúmerið mitt svo ég var á tánum gagnvart öllu undarlegu sem ég gæti óvart samþykkt) þá fannst mér ég detta oft út; það er ekkert sem segir mér að ég sé skráð inn, hvergi "Halló Dagný, þú ert inni" imbaklausa sem fær mann til að anda léttar.
Valblaðsbarinn er á fínum stað en eftir að ég var búin að skrá mig inn og smellti svo á 'síðan mín' þá fékk ég innskráningarformið upp aftur. Ekki mjög traustvekjandi.
Fyrir utan augljóslegan galla sem er að vefurinn virkar bara í Internet Explorer á Windows og notast við Windows Media Player (maður fær allar skrár á .wma formi en ekki .mp3 sem þýðir að skráin kemst ekki í winamp playlistann nema bakdyramegin) þá er þessi vefur fínn í íslensku vefjaflórunni/flórnum.
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.

