moonboots kannski?
ég þarf að fá mér vetrarskó. Snjórinn er nefnilega kominn og vonandi til að vera. Af því ég á þúsund aðra skó (sem vill svo til að eru annaðhvort inniskór eða strigaskór) langar mig í einhverja góða kuldaskó sem eru þægilegir en samt fínir, bæði hversdags/kvölds. þeir verða að hækka mig svolítið upp en vera samt þægilegir og hættulausir. þessir skór virðast ekki vera til! Eins er þetta með fötin, það eru ekki til nein föt í þessum bæ sem manni langar í og það litla sem maður finnur hættir maður við að kaupa út af fyrirsjáanlegri stækkun miðbaugs. En skóna verð ég að finna.
Miðvikudagur 29. október 2003 kl. 21:03
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
til hamingju Dagný!!!
dagný:
takk stjana mín :p

