það sem þú hélst að þú vissir um mig en gerðir ekki
Tryggvi gerði um daginn topp 100 lista um sjálfan sig. ég er búin að vera að spá í að gera þetta því það er verulega 'challanging' að skrifa svona um sjálfan sig, sérstaklega þegar maður getur sagt alls konar hluti sem enginn annar veit... ennþá að minnsta kosti.
á ég ekki bara að láta vaða....
1. ég fæddist þann 29. apríl 1978
2. ég fæddist á akureyri en ólst upp á hauganesi í eyjafirði
3. það var HUGE snjóskafl fyrir utan húsið mitt þegar ég fæddist
4. pabbi minn var á sjó þegar ég fæddist
5. ég heiti dagný eftir laginu hans sigfúsar halldórssonar
6. ég var eina stelpan í mínum árgangi á hauganesi
7. fyrstu bestu vinkonur mínar voru gunna og freyja, þær eru 1 og 2 árum eldri en ég
8. þær komu í eins árs afmælið mitt
9. ég á systur sem er 2 árum yngri en ég
10. þegar hún klemmdi puttana sína á bílhurðinni fór ég að hágráta en ekki hún
11. ég hef aldrei beinbrotnað
12. ég hef einu sinni farið á sjúkrahús, þegar ég var 7 ára fékk ég lungnabólgu
13. ..þá fékk ég 41.8 stiga hita
14. ég held að maður fái einhvern heilaskaða ef hitinn fer yfir 42 stig
15. ég held að ég hafi sloppið við það
16. ég byrjaði að safna frímerkjum þegar ég var 7 ára
17. ég byrjaði líka að safna hári þá og klippti það þegar ég fermdist
18. ...ég á fléttuna ennþá ofan í skúffu síðan ég lét klippa síða hárið
19. ...ég var með ömurlega klippingu eftir það
20. ég hélt einusinni upp á modern talking
21. ég á eina plötu með þeim
22. fyrsti geisladiskurinn sem ég keypti var Twin Peaks soundtrack
23. ég tók upp twin peaks á sínum tíma, allavega 7 vídeospólur
24. ég held það sé löngu búið að taka yfir þær
25. ég hélt líka upp á michael jackson og new kids on the block a.k.a NKOTB!
26. ég veggfóðraði 10fm herbergið mitt með plakötum af jackson
27. ég er búin að henda þeim öllum núna
28. ég átti einusinni 70 pennavini
29. ég fékk einusinni 20 bréf í pósti á einum degi
30. þá voru póstkassar allra í þorpinu í einu húsi og maður þurfti að labba þangað til að ná í póstinn.
31. gunna vinkona mín átti líka böns af pennavinum
32. ég byrjaði að vinna í fiski þegar ég var 12 ára
33. ....í dag er vinna barna undir 13 ára aldri bönnuð
33. ....mér fannst það allt í lagi því pabbi átti fyrirtækið
34. ....líka pabbi gunnu og freyju og þær unnu þar líka
35. ....ég vann þar í sjö sumur
36. ég fór í grunnskóla í árskógarskóla
37. ég fór í 10. bekk í dalvíkurskóla
38. ég fór í menntaskólann á akureyri eftir 10. bekk
39. í raun flutti ég að heiman þegar ég var 16 ára
40. ég bjó fyrsta árið á heimavist en svo leigði ég, ýmist ein eða með fleirum
41. ég fór fyrst á málabraut og skipti svo yfir á félagsfræðibraut
42. ég sé ekki eftir því
43. ég féll einusinni í stærðfræði
44. hver gerir það ekki?
45. ég fór í aulabekk í stærðfræðinni og náði
46. ég féll líka einusinni á skriflega bílprófinu, auðveldari hlutanum
47. það var áður en skriflega prófið varð erfitt
48. ég hef aldrei fengið sekt frá löggunni
49. ég hef einu sinni fengið stöðumælasekt
50. ég hef aldrei átt bíl
51. ég á einn gullfisk
52. hann heitir tetris IV
53. hann átti einusinni RISA stórt búr en ég nennti ekki að hafa það lengur og seldi það
54. núna er tetris bara í lítilli gullfiskakúlu
55. ég er með ba gráðu í grafískri hönnun frá listaháskóla íslands
56. ég starfa í dag sem grafískur hönnuður
57. ég er pjúsari
58. ég er meðlimur í icelandic national team
59. mér finnst gaman að synda
60. ég fer yfirleitt í vesturbæjarlaugina
61. ég hef aldrei séð homma í vesturbæjarlauginni
62. mér finnst tilgangslaust og leiðinlegt að fara í líkamsræktarstöðvar
63. ég vann einusinni í líkamsræktarstöð
64. mér leiðast stafsetningarvillur
65. mér finnst það lúkka betur að skrifa allt með lágstöfum, þó það sé stundum vitlaust
66. ég byrjaði að blogga í mars 2000
67. ég sagði engum sem ég þekkti frá því fyrr en rúmlega ári seinna
68. ég býst við að það hafi verið út af feimni
69. ég er með ofnæmi fyrir formalíni
70. formalín má finna í náttúrulegum efnum sem búið er að dauðhreinsa, s.s. við, bómull og silki
71. ég er því með ofnæmi fyrir sagi og nýjum fötum
72. ég get ekki drukkið kaffi
73. ég hata sígarettureyk
74. mér finnst ólífur vondar
75. ég elska slátur
76. ég elska líka súkkulaði
77. ég er naut
78. ég og óli kærasti minn byrjuðum saman 7. febrúar 1997
79. óli er frá dalvík
80. ég sór einu sinni að ég myndi aldrei vera með strák frá dalvík
81. núna búum við í íbúð sem við keyptum saman í vesturbæ reykjavíkur
82. við eigum von á barni í apríl 2004
83. við fórum í sónar í síðustu viku og sáum erfingann sprikla
84. ég er búin að æla 8 sinnum á þessum 3 mánuðum sem komnir eru
85. en annars hef ég það bara fínt
86. ég hlakka til að fá bumbu
87. ég hlakka líka til að fást við þetta nýja hlutverk
88. ég get sofið endalaust
89. ég hef alltaf átt erfitt með að vakna
90. einu sinni snoozaði ég vekjaraklukkuna á 10 min fresti í 4 klukkutíma
91. síminn minn er vekjaraklukkan mín
92. ég elska hönnunarbækur
93. ég elska bókabúðir
94. ég elska erlendar bókabúðir með gott úrval hönnunarbóka ennþá meira
95. ég vona að ég muni búa tímabundið í útlöndum í framtíðinni
96. ég veit að ég myndi alltaf flytja aftur til íslands
97. ég vona að ég og/eða óli fari erlendis í skóla í náinni framtíð
98. ég gæti búið hvar sem er á landinu/í heiminum ef ég hefði bara góða nettengingu
99. mér leiðist aldrei
100. ég gæti talið upp 100 atriði í viðbót
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
til hamingju bæði tvö - eða á maður að segja öll þrjú?!?
kveðja frá Frakklandi
Hey til hamingju...Baby boom...
Bjarkey:
Til hamingju með bumbubúann ;o)
Kveðja, Bjarkey

