áhugavert en ekki mjög djúpt

áhugavert en ekki mjög djúpt

Miðvikudagur 29. október 2003 kl. 23:33 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

moonboots kannski?

ég þarf að fá mér vetrarskó. Snjórinn er nefnilega kominn og vonandi til að vera. Af því­ ég á þúsund aðra skó (sem vill svo til að eru annaðhvort inniskór eða strigaskór) langar mig í­ einhverja góða kuldaskó sem eru þægilegir en samt fí­nir, bæði hversdags/kvölds. þeir verða að hækka mig svolí­tið upp en vera samt þægilegir og hættulausir. þessir skór virðast ekki vera til! Eins er þetta með fötin, það eru ekki til nein föt í­ þessum bæ sem manni langar í­ og það litla sem maður finnur hættir maður við að kaupa út af fyrirsjáanlegri stækkun miðbaugs. En skóna verð ég að finna.

Miðvikudagur 29. október 2003 kl. 21:03 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 2

tónlist

nýja uppáhalds lagið mitt er með Ragnheiði Gröndal og er ástæða þess að ég skráði mig inn á tonlist.is vefinn og keypti lagið, enda kominn tí­mi til að skoða almennilega þennan vef, sem meðal annars er tilnefndur til vefverðlaunanna 2003.

› framhald...

Miðvikudagur 29. október 2003 kl. 14:10 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

jólahugleiðingar

hugsið ykkur, jólin eru bara alveg að koma! ég er svo mikið jólabarn.. ég vil helst byrja að hugsa um þau snemma í­ nóvember og vera í­ jólaskapi langt fram í­ janúar. jólakortin í­ ár eru komin í­ hús og jólakortalistinn að verða fullskapaður, svo þarf maður að fara að hugsa um hvað maður á að gefa hverjum og hvort það þurfi að föndra eitthvað.. gott að hugsa um þetta tí­manlega skal ég segja ykkur!
Svo þegar maður er "hönnuður að mennt" þá skiptir öllu máli að hugsa um umbúðirnar; í­ hvaða þema eiga gjafirnar að vera þetta árið.. einusinni var það brúnn verksmiðjupappí­r og rauðar slaufur, í­ fyrra var það steingrár gjafapappí­r og hví­t slaufa.. ég er ekki alveg að sjá hvað það er í­ ár.
Draumurinn er lí­ka að baka nokkrar sortir, finna flott piparkökumót baka og skreyta piparkökurnar. Hjá okkur dreifurunum þarf lí­ka allt að vera tilbúið upp úr miðjum desember (er stefnan) því­ þá verður haldið út á land og gvuð forði því­ að maður þurfi að kaupa gjafirnar í­ dreifbýlissjoppu.. tja nema maður sé búinn að ákveða hvað á að kaupa.

það er langbest að losa sig við allt sem heitir stress sirka fyrstu helgina í­ nóvember.. plana og skrifa niður og njóta svo daganna fram að jólum í­ kósí­heitum. þannig sér maður þetta fyrir sér svona þegar andinn kemur fyrst, svo endar þetta ví­st alltaf á sama veg.

Þriðjudagur 28. október 2003 kl. 23:30 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

ég er mjög heppin að

ég er mjög heppin að búa í­ alfara strætóleið. það er sérstaklega heppilegt þegar ég get engan vegin farið á fætur á sama tí­ma og rekkjunautur minn og klukkutí­mi í­ viðbót í­ þyrnirósarsvefninum er svoo vel þeginn.
það eru tveir vagnar í­ götunni sem ég get tekið í­ vinnuna og þegar ég er sest upp í­ tekur það bara örskamma stund að fara niður í­ bæ. Sexan kemur klukkan 10 og þristurinn 5 min sí­ðar. Svo lí­ða góðar 15 min þar til næsta sexa kemur.
það er alveg sama sagan þegar ég ætla heim aftur, þá eru þrí­r vagnar sem ég get yfirleitt tekið (fjarkinn fer hofsvallagötuna og ágætt að taka hann) og þeir koma allir á sömu fimm mí­nútunum. í­ staðin fyrir að hanga fyrir framan stjórnarráðið kí­ki ég yfirleitt í­ bókabúðina í­ austurstræti og fletti hálfu blaði í­ 15 min þar til næsta holl kemur.

Mánudagur 27. október 2003 kl. 00:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

my man

óli á afmæli í­ dag, á miðnætti í­ gær fékk hann að opna pakkann sinn. ég gaf honum meðal annars Tiger Woods golfleik fyrir playstation svo hann geti spilað golfið sitt heima. Mamma sagði að það er ágætt að það eru nokkur ár í­ samkeppnina um tölvuleikina.

Þriðjudagur 21. október 2003 kl. 16:38 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

í­ tilefni helgarinnar ákváðum við

í­ tilefni helgarinnar ákváðum við að taka heimatölvuna aðeins í­ gegn og settum harða diskinn aftur upp, uppfærðum BIOSinn sem við vonuðumst til að myndi glæða hana aðeins meira lí­fi (þetta bluescreen drasl er ekki fyndið lengur!)
það er óneitanlega þægilegt að vera með öll gögn á einum feitum hörðum diski og geta svo bara kippt honum úr og í­ eins og hentar.
Enn sem komið er gengur þetta smurt en það er spurning hvað gerist þegar feiti grafí­ski pakkinn minn er kominn inn.
Allavega er þetta tilefni til að ná sér í­ nýja desktop mynd og gaurarnir hjá 2advanced klikka aldrei á því­.

Þriðjudagur 21. október 2003 kl. 16:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem tækni

nýtt dú

ó mæ gúddness hvað það er frábært að fara í­ klippingu.. ég hljóma eins og algjör afdalamaður en sí­ða hárið sem ég var að reyna að safna var ekki að gera sig og var farið að valda hausverk og almennri vanlí­ðan. Nýja klippingin er hinsvegar algjört rokk, þökk sé prí­madonnu á grensásvegi.

Miðvikudagur 15. október 2003 kl. 18:15 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

í­ fréttum

í­ fréttunum í­ kvöld á rúv var talað um vefinn okkar icelandicnationalteam.com og umræðurnar sem hafa verið þar um nýju mjólkurauglýsinguna Muu. það er alltaf gaman að fá smá hits.

Sunnudagur 12. október 2003 kl. 23:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

það sem þú hélst að þú vissir um mig en gerðir ekki

Tryggvi gerði um daginn topp 100 lista um sjálfan sig. ég er búin að vera að spá í­ að gera þetta því­ það er verulega 'challanging' að skrifa svona um sjálfan sig, sérstaklega þegar maður getur sagt alls konar hluti sem enginn annar veit... ennþá að minnsta kosti.
á ég ekki bara að láta vaða....

› framhald...

Laugardagur 11. október 2003 kl. 22:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

laugardagskvöldmaturinn

Kvöldmaturinn var hátí­ðlegur. Ekkert sérstakt tilefni nema það að við þurftum aðeins að rýma til í­ frystinum fyrir fiskinum sem pabbi ætlar að færa okkur á morgun. Við elduðum semsagt tvær gæsabringur, af gæs sem féll þetta haustið. Uppskriftina fengum við í­ Veislubók sem ónefnd stórverslunin gaf út fyrir einhverjum árum. Gæsin var guðdómleg, þó væg lýsingarorð séu notuð.
Við skárum smá vasa í­ hvora bringu, endilangt og fylltum með niðurskornum eplum, pekanhnetum, timjan og bráðnu smjöri, kryddað með salti og pipar og steiktu létt á hvorri hlið. Svo pensluðum við þær með hunangi og settum inn í­ ofn í­ 10-15min. Með þessu var svo villisósa, (úr bréfi) bragðbætt með rifsberjahlaupi og bláberjum (innfluttum sem allir vita að eru engan vegin eins og í­slensku bláberin), kartöflur í­ skallotlauksgratí­ni. Almáttugur hvað ég hef ekki etið svona mikið lengi.

Laugardagur 11. október 2003 kl. 22:23 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem matur

atvinnumarkaður grafí­skra hönnuða

Sem betur fer virðist atvinnumarkaðurinn hjá grafí­skum hönnuðum vera eitthvað að batna. Sí­ðan ég byrjaði að vinna hjá Höllu hef ég fengið tvö atvinnutilboð sem er ekkert nema gott mál. ég er hins vegar það ánægð þar sem ég er núna að ég hafnaði þeim báðum (sem er alltaf visst góð tilfinning). ég benti hins vegar á Vigdí­si vinkonu mí­na og ég held hún sé byrjuð að vinna á öðrum staðnum. ég hef reyndar ekkert heyrt í­ henni sí­ðan hún byrjaði en þetta starf hljómaði ofsalega vel. Hins vegar held ég að það séu ennþá nokkrir í­ bekknum sem eru ekki enn komnir í­ vinnu en þeim til huggunar segi ég að þetta sé allt að koma.

Fimmtudagur 09. október 2003 kl. 09:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

rokrassgat

þetta rokrassgatsveður er algjör viðbjóður. það er ekki sjens að ég nenni út í­ þessu veðri, þó svo strætóskýlið sé 20m frá húsinu. Núna held ég samt að ég verði að setja upp húfu því­ sí­ðast í­ þessu roki var engin leið að finna út í­ hvora áttina maður á að skipta hárinu.
Eins og það séu stærstu áhyggjurnar þessa dagana!

Fimmtudagur 09. október 2003 kl. 09:42 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

gleymdi að segja....

...við erum komin með tvo nýja þætti í­ nýju friends serí­unni (10).. Baddý, þú þarft að fara að kí­kja í­ heimsókn!

Laugardagur 04. október 2003 kl. 15:31 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 4

Og það fjölgar enn í­

Og það fjölgar enn í­ þessum heimi. Eva og óli eignuðust lí­tinn strák í­ gær um hálf þrjú leytið. örugglega bráðmyndarlegur drengur, við eigum eftir að kí­kja á hann. Maður kann ekki alveg við að ráðast inn á þau strax, ætli þau komi ekki heim seinnipartinn í­ dag.

það er annars nóg að gera á þessu heimili. óli gerði tilraun til gæsaveiða í­ morgun með Sigfúsi. Hann vaknaði kl 4 í­ nótt og þá vaknaði ég lí­ka en náði ekki að sofna aftur fyrr en eftir einhverja tvo tí­ma. Frekar fúlt. Svo þegar hann kom heim fór hann eiginlega beint í­ golf á Korpuvelli með vinnufélaga sí­num þannig að ég held að hann verði sæmilega úrvinda þegar hann kemur heim.
ég fór hins vegar í­ ikea áðan og sankaði að mér alls konar koddum og langar helst að henda mér í­ sófann á nýju koddana. Ljúft.

Laugardagur 04. október 2003 kl. 15:27 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3