tónlist
ég held ég hafi smitast af tónlistarógleðinni sem var að ganga um daginn. núna veit ég ekki hvað ég á að hlusta á því allt sem er í safninu hérna er alveg ömó og á helst heima í summer 2002 archive eða þvíumlíku.
Ekki stinga upp á Sigurrós (þarf smá pásu frá þeim, eru samt bestir), Björk, Massive Attack, Bítlunum, Simon & Garfunkel, klassík, rokki eða píkupoppi, Röyksopp, Coldplay, GusGus, Radiohead eða þvíumlíku. Kannski er bara kominn tími á að hlusta á HarryPotter hljóðbækurnar eða bíða eftir nýju naglbítaplötunni.
Eða standup því við systurnar ætlum að skella okkur á Pablo Fransisco á föstudaginn.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
yeah baby pablo rúlar
Ég mæli með því að ef þú ert til í að skipta algjörlega um gír um tíma, að fara og kaupa nýja diskinn með Josh Groban. Þessi drengur er svo yndislegur og bræðir hjarta manns algjörlega ;o)
eva:
Dusty Springfield, Al Green, Chet Baker, Emeliana Torini. Mæli með að ná sér í DC++, maður finnur alltaf e-ð nýtt þar, með því að skoða söfnin hjá hinum ;). Til dæmis Glám og Skrám, Prumpulagið og Viljálm Vilhjáls :D

