timewarp!

Svolí­tið skrýtið henti mig um helgina, reyndar á föstudaginn, rétt eftir fimm. ég var að fara niður í­ þvottahús en það er leigjandi í­ herbergi sem er við hliðina á þvottahúsinu, einhver kona á fertugsaldri sem er alltaf heima með skjáleikinn í­ gangi, vibbalykt sem kemur úr í­búðinni og hefur stundum verið að böggast ef einhver fer í­ þvottahúsið seint á kvöldin.
Allavega, ég var að opna þvottahúshurðina þá kemur hún fram og segir það er bannað að fara í­ þvottahúsið á þessum tí­ma dags...
ég varð svo hissa að ég öskraði (næstumþví­): ha? klukkan er fimm?!
þá bakkaði hún inn og sagði ó sorry, i'm in a timewarp, skilurðu og þegar ég leit framan í­ hana sá ég að augun voru gjörsamlega á floti hún var svo dópuð.. núna veit ég ekki hvort hún sé á löglegum lyfjum en ég leyfi mér að efast um það.
Auðvitað má fólk gera það sem því­ sýnist heima hjá sér en manni getur ekki staðið á sama þegar maður er vanur að umgangast fólk sem veit hvernig sólarhringnum lí­ður. Sem betur fer (!) á hún ekki marga vini í­ sama ástandi þessi ólukkans kona þannig að það er ekki mikið ónæði af henni hérna í­ húsinu, það eru bara allir á vakt.


Mánudagur 01. september 2003 kl. 16:12
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

Lára:

Tja, ég man eftir konu sem systir mín talaði oft um og þótti afskaplega löt, síkvartandi og jafnvel dópuð. Svo dó hún einn daginn, hún var sumsé í alvörunni veik. Ef maður er einn, veikur og kemst ekkert þá er líklega ekkert annað að gera en horfa á skjávarpið og fylgjast með umferð um þvottahúsið. Þetta veika fólk er einhversstaðar uppfullt af lyfjum ...

Kær kveðja
Lára

01.09.03 17:26