job

Eftir lágdeyðuna í­ sumar hafa sí­ðustu dagar verið viðburðarí­kir. ég byrjaði í­ gær í­ nýrri vinnu á auglýsinga/hönnunarstofu sem heitir Mixa Hönnun og er rekin af stelpu sem er búin að vera freelance í­ nokkur ár en er núna að sækja mjög í­ sig veðrið. ég er fyrsti starfsmaðurinn hjá henni og vonandi fjölgar okkur með tí­manum, ekkert nema gott um það að segja. Fyrsta verkefnið mitt var að útbúa sölubækling fyrir einn kúnna og það er alltaf jafn gaman. Svo veit ég að það bí­ða mí­n heilmörg verkefni, . það sem er lí­ka skemmtilegt við þetta er að vinnustaðurinn er niðri í­ bæ, í­ Bankastræti þannig að ég er 5-7 min í­ strætó í­ vinnuna og maður hittir talsvert meira af fólki en venjulega.


Miðvikudagur 24. september 2003 kl. 20:51
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Til lukku með starfið! Það getur verið ágætt að hitta annað fólk svona annað slagið, þó í hófi :-)

25.09.03 10:36


Bjarkey:

Til hamingju með nýju vinnuna. Kveðja Bjarkey ;o)

25.09.03 11:05


gunna:

til hamingju! :) halla er svo frábær!!

25.09.03 12:11


tengdó:

Hjartanlega til hamingju, elskan. Þú ert frábær.

25.09.03 20:37


mundi:

til hamingju daia mín - held og lykke

01.10.03 13:35