ég fíla veðrið þegar það
ég fíla veðrið þegar það er svona. Fór út í búð áðan í tveimur peysum með hettu yfir höfðinu og loftið var rosalega ferskt. ég þarf bara að fara á eftir fyrir í gettóið norðan hringbrautar. það veit ekki á gott. þar er hins vegar náungi sem ætlar að sjá um bókhaldið mitt þannig að ég geti frílansað í friði fyrir ógnvekjandi bókhalds hugsunum og skattagrýlu. ég er ekki aðeins að kaupa mér meiri tíma til að dísæna heldur líka svefnfrið.
Annars hringdi bekkjarsystir mín í mig í gær, fyrrverandi þeas. þær eru tvær sem eru búnar að vera lausaleiks í sumar og eru núna búnar að finna sér húsnæði á Laugarveginum til stunda sína hönnun. þær spurðu hvort ég væri geim í að vera með þeim þar, en eins mikið og ég vildi þá hef ég það bara alltof gott hérna.
þegar maður getur unnið heima, með netið beint í æð og melabúðina handan við hornið þá er maður nokkuð vel settur. ég þarf bara að sjá til þess að bókhaldsnáunginn norðan brautar hafi nóg að gera.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

