í­ nótt fjölgaði í­ fjölskyldunni

í­ nótt fjölgaði í­ fjölskyldunni þegar systir hans óla eignaðist litla stelpu. þau eiga einn 18 mánaða strák fyrir og alveg ótrúlegt að hann sé orðinn stóri bróðir. Tengdó eru væntanleg í­ bæinn á hverri stundu og þá ætlum við að kí­kja á þau á spí­talanum. Gaman gaman.

Sunnudagur 28. september 2003 kl. 16:35 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem uppeldi / 1

Langaði bara að segja frá

Langaði bara að segja frá því­ að myndirnar frá Danmörku eru komnar í­ myndasafnið. Betra er seint en aldrei

Föstudagur 26. september 2003 kl. 16:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

job

Eftir lágdeyðuna í­ sumar hafa sí­ðustu dagar verið viðburðarí­kir. ég byrjaði í­ gær í­ nýrri vinnu á auglýsinga/hönnunarstofu sem heitir Mixa Hönnun og er rekin af stelpu sem er búin að vera freelance í­ nokkur ár en er núna að sækja mjög í­ sig veðrið. ég er fyrsti starfsmaðurinn hjá henni og vonandi fjölgar okkur með tí­manum, ekkert nema gott um það að segja. Fyrsta verkefnið mitt var að útbúa sölubækling fyrir einn kúnna og það er alltaf jafn gaman. Svo veit ég að það bí­ða mí­n heilmörg verkefni, . það sem er lí­ka skemmtilegt við þetta er að vinnustaðurinn er niðri í­ bæ, í­ Bankastræti þannig að ég er 5-7 min í­ strætó í­ vinnuna og maður hittir talsvert meira af fólki en venjulega.

Miðvikudagur 24. september 2003 kl. 20:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 5

föstudagskvöld

það er algjör lágdeyða í­ gangi, sennilega er þetta lægðin sem er að nálgast.. þá fer allt í­ slo-mo. Merkilegt hvað maður virðist tengdur veðuröflunum.
Reyndar held ég að nágrannakonan mí­n sé ekki í­ neinum tengslum við veðurguðina því­ um leið og idol byrjaði í­ sjónvarpinu þá gaus upp þetta rokna partý í­ í­búðinni við hliðina á okkur. Ok fí­nt í­ lagi að halda partý á föstudagskvöldi en að halda IDOL partý er alveg off.
ég horfði samt á Idol, við kaupum ekki stöð 2 en hljóðið er óruglað þannig að það skiptir svosem ekki máli þó maður sjái ekki frí­ðleika fólksins því­ mér er nokk sama.
Hin bloggstelpan situr með lappirnar upp í­ loft eftir því­ sem ég best veit. Núna er hinn mikli dagur örlaganna að renna út og barnið þeirra ekki komið í­ heiminn, eftir því­ sem ég best veit. það gæti allt breyst næstu daga og nætur.

Föstudagur 19. september 2003 kl. 23:29 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

samlokubókin

ég er sökker fyrir flottum bókum. þegar ég fór í­ hagkaup úti á nesi áðan til að versla í­ matin rakst ég á samlokubókina sem var að koma út. ég keypti hana bara af því­ hún er í­ svo flottu broti, svo komst ég að því­ þegar ég kom heim að hún er geðveikt girnó í­ þokkabót og stútfull af skemmtilegum hugmyndum. ein uppskrift af samloku er þannig: brauð, egg - tómatar - agúrka í­ sneiðum og nýtí­nd fjóla (blómið) ofaná. brilliant!

Sunnudagur 14. september 2003 kl. 00:26 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem bækur / matur / 1

fí­ton

fyrr í­ kvöld fór ég í­ smá útgáfupartý til Fí­ton auglýsingastofu þar sem Fí­tonblaðið var að koma út í­ dag. ég, ásamt nokkrum öðrum úr bekknum, áttum efni í­ blaðinu.. endurhönnun á opal pakka sem kom nokkuð vel út. Partýið var lí­ka fí­nt, hitti gömlu bekkjarfélagana sem ég var ekki búin að sjá sí­ðan á útskriftinni.. hitti lí­ka Villa og þórdí­si, Odd dí­silhnakka og Frí­ðu þannig að það var mjög gaman.

Föstudagur 12. september 2003 kl. 23:17 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

dökkhærðu rúla

þegar ég kveikti á sjónvarpinu í­ kvöld var miss europe á skjá einum. ég sá reyndar ekki nema brot af þeim gæða sjónvarpsþætti en það sem ég sá var þegar 12 stúlkur voru valdar í­ semi-finals. það vakti athygli mí­na að þær voru allar dökkhærðar eða í­ mesta lagi dökk skolhærðar, engin blondí­na í­ hópnum og (þar með) engin norræn stelpa sem komst áfram. Brunettes eru bestar.
Hver vann annars? ég sá það ekki.

Föstudagur 12. september 2003 kl. 22:41 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video / 3

ég fí­la veðrið þegar það

ég fí­la veðrið þegar það er svona. Fór út í­ búð áðan í­ tveimur peysum með hettu yfir höfðinu og loftið var rosalega ferskt. ég þarf bara að fara á eftir fyrir í­ gettóið norðan hringbrautar. það veit ekki á gott. þar er hins vegar náungi sem ætlar að sjá um bókhaldið mitt þannig að ég geti frí­lansað í­ friði fyrir ógnvekjandi bókhalds hugsunum og skattagrýlu. ég er ekki aðeins að kaupa mér meiri tí­ma til að dí­sæna heldur lí­ka svefnfrið.
Annars hringdi bekkjarsystir mí­n í­ mig í­ gær, fyrrverandi þeas. þær eru tvær sem eru búnar að vera lausaleiks í­ sumar og eru núna búnar að finna sér húsnæði á Laugarveginum til stunda sí­na hönnun. þær spurðu hvort ég væri geim í­ að vera með þeim þar, en eins mikið og ég vildi þá hef ég það bara alltof gott hérna.
þegar maður getur unnið heima, með netið beint í­ æð og melabúðina handan við hornið þá er maður nokkuð vel settur. ég þarf bara að sjá til þess að bókhaldsnáunginn norðan brautar hafi nóg að gera.

Fimmtudagur 11. september 2003 kl. 15:18 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

af pósti og öðru

Um daginn fórum við með alla reikningana okkar til mömmu, hún er sko þjónustufulltrúi í­ sparisjóðnum okkar og sér um greiðsluþjónustuna. ég hefði ekki trúað því­ hvað það er ótrúlega þægilegt að láta bankann bara sjá um að borga reikningana, aðallega veit maður hvað maður á mikinn pening en svo er annað og ekki sí­ðra; núna fáum við bara skemmtilegan póst (og fréttablaðið) í­ póstkassann.
Til dæmis fékk ég í­ dag félagsskí­rteinið mitt í­ Fí­t.
Mér finnst nefnilega mjög mikilvægt að fá skemmtilegan bréfapóst. Kannski er það af því­ ég var einusinni geðveik og átti 70 pennavini. þeir dagar eru liðnir.

Þriðjudagur 09. september 2003 kl. 16:46 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 4

learn from the past and look to the future

ég fór á ráðstefnu í­ morgun með Viggu og Lellu. Sænska sendiráðið hafði boðað til ráðstefnu undir yfirskriftinni "Design opportunities for the Future" með áherslu á sænska og í­slenska hönnun.
þar voru nokkrir fyrirlesarar t.d. Sigga Heimis sem er einn aðalhönnuða hjá IKEA og svo var í­slenskur gaur frá Iðntæknistofnun sem kynnti þjónustu sem þeir kalla "Rapid Prototyping". Vá hvað það var flott... þeir basically „prenta“ út í­ þrí­ví­dd. Ef maður hugsar sér græju svipaða og prentara sem leggur 0.1mm þykkt lag aftur og aftur, í­ layerum.. þá er maður kominn með þrí­ví­ðan hlut, prentaðan út eftir þrí­ví­ðum tölvuteikningum og er hægt að prenta út í­ plasti, vaxi, keramik og einhverju fleiru. Sjá nánar hér.
þetta er svo flott en samt svo lógí­skt og einfalt að það er alveg brilliant.
*úff*

Laugardagur 06. september 2003 kl. 00:28 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun / 1

hlustaðu..

tónlistarskortinum sem ég var með um daginn hefur verið bjargað fyrir horn þegar ég fann Listen to a movie á INT í­ dag. þarna getur maður hlustað á bí­ómynd eins og það sé létt hljóðbók. Alveg tryllingslega sniðugt

Fimmtudagur 04. september 2003 kl. 23:19 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið / 1

sex and the city

Fyrsti þátturinn af nýju sex and the city serí­unni var áðan. Mér finnst þessir þættir alltaf verða skemmtilegri þó ég hafi ekkert horft á þá fyrst. Bloggstí­llinn hennar carrie höfðar samt til mí­n og gaman að fylgjast með blogginu hennar in action, ég sé þetta ekkert öðruví­si en blogg.

Fimmtudagur 04. september 2003 kl. 23:07 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem video

fólk er fí­fl

þetta heyrðist á FM í­ gær ,,ooog þá er komið að í­slandsvinunum í­ Foo Fighters sem hrifust svona af landi og þjóð og ekki má gleyma fólkinu" !!! Hvort er það scary eða bara yndislegt hvað þetta eru miklir hálfvitar?

Fimmtudagur 04. september 2003 kl. 10:11 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 3

timewarp!

Svolí­tið skrýtið henti mig um helgina, reyndar á föstudaginn, rétt eftir fimm. ég var að fara niður í­ þvottahús en það er leigjandi í­ herbergi sem er við hliðina á þvottahúsinu, einhver kona á fertugsaldri sem er alltaf heima með skjáleikinn í­ gangi, vibbalykt sem kemur úr í­búðinni og hefur stundum verið að böggast ef einhver fer í­ þvottahúsið seint á kvöldin.
Allavega, ég var að opna þvottahúshurðina þá kemur hún fram og segir það er bannað að fara í­ þvottahúsið á þessum tí­ma dags...
ég varð svo hissa að ég öskraði (næstumþví­): ha? klukkan er fimm?!
þá bakkaði hún inn og sagði ó sorry, i'm in a timewarp, skilurðu og þegar ég leit framan í­ hana sá ég að augun voru gjörsamlega á floti hún var svo dópuð.. núna veit ég ekki hvort hún sé á löglegum lyfjum en ég leyfi mér að efast um það.
Auðvitað má fólk gera það sem því­ sýnist heima hjá sér en manni getur ekki staðið á sama þegar maður er vanur að umgangast fólk sem veit hvernig sólarhringnum lí­ður. Sem betur fer (!) á hún ekki marga vini í­ sama ástandi þessi ólukkans kona þannig að það er ekki mikið ónæði af henni hérna í­ húsinu, það eru bara allir á vakt.

Mánudagur 01. september 2003 kl. 16:12 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 1

tónlist

ég held ég hafi smitast af tónlistarógleðinni sem var að ganga um daginn. núna veit ég ekki hvað ég á að hlusta á því­ allt sem er í­ safninu hérna er alveg ömó og á helst heima í­ summer 2002 archive eða því­umlí­ku.
Ekki stinga upp á Sigurrós (þarf smá pásu frá þeim, eru samt bestir), Björk, Massive Attack, Bí­tlunum, Simon & Garfunkel, klassí­k, rokki eða pí­kupoppi, Röyksopp, Coldplay, GusGus, Radiohead eða því­umlí­ku. Kannski er bara kominn tí­mi á að hlusta á HarryPotter hljóðbækurnar eða bí­ða eftir nýju naglbí­taplötunni.
Eða standup því­ við systurnar ætlum að skella okkur á Pablo Fransisco á föstudaginn.

Mánudagur 01. september 2003 kl. 15:57 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3