veiðisaga
þriðji dagur gæsaveiðitímabilsins er að renna sitt skeið og síðast þegar ég frétti voru níu fuglar komnir niður. óli H, óli M og Sigfús fóru á þriðjudagskvöld í Cabelas göllunum sínum með Berturnar og í dömustígvélunum inn í Borgarfjörð og í dag var haldið upp á Skagaströnd, veit svo ekki meir. En þeir eru væntanlegir í menninguna á sunnudaginn. ég, Eva og Hildur húkum því einar heima og yljum okkur við þá tilhlökkun að uppskeruhátíð veiðiklúbbsins verður vegleg þetta árið.
Föstudagur 22. ágúst 2003 kl. 21:22
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
eva:
og svo komu sex gæsir í nótt! nú þarf maður að tæma fristinn ;)

