megi skorkvikindi rotna í­ fúlum pytt

það er ógeðslegur geitungur búinn að koma sér fyrir í­ stofuglugganum og ég held hann ætli að drepast þar...jakkkk...
ég opnaði svalahurðina fyrir 3 klst sí­ðan og dró fyrir allann gluggann og vona að hann drulli sér út!
það væri alveg tí­pí­skt ef það væru komnir 5 vinir hans núna að japla á stofublómunum í­ glugganum.. ég þori ekki að gá.


Sunnudagur 17. ágúst 2003 kl. 20:06
Flokkað sem ýmislegt. Þar eru 105 færslur.

/ Álit

Hanna:

hey, huggun! það fannst á grenivík fluga sem var með RANA og jafn langan búk og þumalputtinn á mér!! sem betur fer er hún dauð og farin í náttúruvísindastofnun íslands! hehe, en viltu gera síðu sem er www.reykjalin.com/stone ? þá getur steini sagt fréttir frá frystó og solliðis ;P bara svona þegar þú hefur tíma!
takk
hanna systir

17.08.03 23:05


batgirl:

oj ég man líka eftir því að þegar ellý bjó á spáni þá sendi hún mér flugu-pöddu í póstinum sú var ógeðfeld, ég er heldur ekki alveg viss hvort það sé leyfilegt að senda dauð skordýr á milli landa.....en hún er samt týnd núna!

17.08.03 23:33


dagný:

fjúff, sem betur fer kom hann inn til okkar til að deyja, Óli veitti honum fall-lega jarðarför þar sem hann henti honum fram af svölunum. :p

18.08.03 12:50


mundi:

er það samskonar jarðarför og tetris fékk???

19.08.03 14:34