fullorðinslíf
það er undarleg tilfinning að vera ekki að fara í skóla í haust. þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég fer ekki í skóla að hausti og þarf því ekki að sanka að mér stílabókum, hressa upp á pennaveskið, kaupa nýja penna (þó það sé nú alltaf gaman). þó ég sé ekki með "eðlilega" vinnu (one who pays) þá er alltaf nóg að gera. ég fékk til dæmis verkefni í dag (one that pays) sem er mjög spennandi og verður vonandi upphaf að nýjum og fleiri spennandi verkefnum. þegar maður er búinn að ákveða hvað maður ætlar að gera í lífinu þýðir lítið að fara að vinna á macdonalds.
Þriðjudagur 12. ágúst 2003 kl. 14:49
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.
/ Álit
Til hamingju með það að vera ánægð

