105

Verkefni mitt sí­ðustu daga hefur verið að koma vef deildarinnar minnar fyrrverandi yfir á server í­ skólanum. ég setti hann nefnilega upp sí­ðasta sumar á pjúsinu en núna var kominn tí­mi til að færa hann.
ég verð að segja að það gekk ótrúlega vel, ekki nema nokkurra stunda (sem náði yfir nokkra daga) vinna. Hins vegar er margt þarna sem sæmir ekki beint grafí­skri hönnunardeild (lúkk sums staðar, þú skilur ef þú skoðar) þannig að það þarf að taka lúkkið aðeins í­ gegn.
ég veit það bara að þessi vefur er kjarni skólastarfsins í­ deildinni og ef hann væri ekki til staðar, ja þá væri ansi mikið prentað út og ljósritað og dreift með tilheyrandi kostnaði.

ég sakna þess óneitanlega að vera ekki að fara í­ skóla. Mig langar að fara aftur bráðum, ekki endilega þennan skóla, frekar útlendan skóla. Læra meiri hönnun.


Þriðjudagur 26. ágúst 2003 kl. 16:56
Flokkað sem hönnun. Þar eru 162 færslur.