spurning dagsins

hvað á maður að borða þegar maður er svangur en hefur ekki lyst á neinu?

Þriðjudagur 26. ágúst 2003 kl. 17:05 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 5

105

Verkefni mitt sí­ðustu daga hefur verið að koma vef deildarinnar minnar fyrrverandi yfir á server í­ skólanum. ég setti hann nefnilega upp sí­ðasta sumar á pjúsinu en núna var kominn tí­mi til að færa hann.
ég verð að segja að það gekk ótrúlega vel, ekki nema nokkurra stunda (sem náði yfir nokkra daga) vinna. Hins vegar er margt þarna sem sæmir ekki beint grafí­skri hönnunardeild (lúkk sums staðar, þú skilur ef þú skoðar) þannig að það þarf að taka lúkkið aðeins í­ gegn.
ég veit það bara að þessi vefur er kjarni skólastarfsins í­ deildinni og ef hann væri ekki til staðar, ja þá væri ansi mikið prentað út og ljósritað og dreift með tilheyrandi kostnaði.

ég sakna þess óneitanlega að vera ekki að fara í­ skóla. Mig langar að fara aftur bráðum, ekki endilega þennan skóla, frekar útlendan skóla. Læra meiri hönnun.

Þriðjudagur 26. ágúst 2003 kl. 16:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem hönnun

gæs

3kg af gæsakjöti er komið inn í­ frystinn en veiðimennirnir komu til byggða í­ fyrradag (svona er ég dugleg að update-a) og virtust vera sæmilega heilir heilsu. En ef það á að veiða meira þá þarf að fara að halda matarboð til að losa frystinn, einhverjir sjálfboðaliðar?

Þriðjudagur 26. ágúst 2003 kl. 16:48 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 2

ég á mér draum...

mig dreymir...
mig dreymir farartæki sem getur svifið um í­ loftinu..
mig dreymir farartæki sem getur svifið um og sogið bara orku úr andrúmsloftinu...

er draumurinn að rætast.. ?
raggo spacecowboy sendi mér linkinn.

Mánudagur 25. ágúst 2003 kl. 13:51 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

trúgirni fólks

ég fékk svolí­tið skemmtilegt bréf rétt í­ þessu..

Dear Hotmail User,
Because of the sudden rush of people signing up to Hotmail, it has come to our attention that we are vastly running out of resources. So, within a month's time, anyone who does not receive this mail with the exact subject heading, will be
deleted off our server. Please forward this email so that we know you are still using this account. (...)
From Mr. Jon Henerd
Hotmail Admin. Dept.


Ef maður fær svona póst á maður bara að segja "Je right!" og henda honum. í­ guðanna bænum ekki senda hann áfram. :)
það er sorglegt en jafnframt fyndið hvað það voru margir listaðir í­ hausnum, sem voru búnir að fá þetta bréf, því­ í­ sakleysi sí­nu og til að eiga ekki hættu á að vera eytt út, þá trúir fólk svona vitleysu.

Mánudagur 25. ágúst 2003 kl. 11:39 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

veiðisaga

þriðji dagur gæsaveiðití­mabilsins er að renna sitt skeið og sí­ðast þegar ég frétti voru ní­u fuglar komnir niður. óli H, óli M og Sigfús fóru á þriðjudagskvöld í­ Cabelas göllunum sí­num með Berturnar og í­ dömustí­gvélunum inn í­ Borgarfjörð og í­ dag var haldið upp á Skagaströnd, veit svo ekki meir. En þeir eru væntanlegir í­ menninguna á sunnudaginn. ég, Eva og Hildur húkum því­ einar heima og yljum okkur við þá tilhlökkun að uppskeruhátí­ð veiðiklúbbsins verður vegleg þetta árið.

Föstudagur 22. ágúst 2003 kl. 21:22 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

einn, tveir og... hann á afmæli í­ dag....

það er alltaf gaman þegar einhver á afmæli. í­ dag á hann Guffi afmæli, til hamingju með það!

Þriðjudagur 19. ágúst 2003 kl. 23:56 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt

megi skorkvikindi rotna í­ fúlum pytt

það er ógeðslegur geitungur búinn að koma sér fyrir í­ stofuglugganum og ég held hann ætli að drepast þar...jakkkk...
ég opnaði svalahurðina fyrir 3 klst sí­ðan og dró fyrir allann gluggann og vona að hann drulli sér út!
það væri alveg tí­pí­skt ef það væru komnir 5 vinir hans núna að japla á stofublómunum í­ glugganum.. ég þori ekki að gá.

Sunnudagur 17. ágúst 2003 kl. 20:06 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem ýmislegt / 4

Gleymdi að minnast á það

Gleymdi að minnast á það en við skruppum norður á föstudaginn, aðallega til að fara í­ brúðkaupið þeirra Hjalta Páls og Rósu Marí­u í­ gær sem var ofsalega fallegt og skemmtilegt.
Fyrir brúðkaupið renndum við yfir á Greniví­k þar sem systir mömmu býr, hún eignaðist lí­tinn strák fyrir viku sí­ðan sem ég bara varð að lí­ta á, því­lí­kt krútt! Svo átti Karen elsta dóttir hennar 10 ára afmæli fyrir nokkru þannig að við hittum fullt af fólki.
Eftir brúðkaupið fórum við aftur suður, lögðum af stað kl 23 í­ gærkvöldi og vorum komin í­ bæinn um kl 3:30 Almáttugur hvað ég hef aldrei verið jafn þreytt eins og eftir að hafa keyrt alla þessa leið. Engar sjoppur opnar en við stoppuðum næstum því­ undir hverjum einasta ljósastaur á leiðinni bara til að hrista hausinn og skvetta rigningar vatni í­ andlitið. Svo var svo mikil þoka á köflum að ég efaðist stundum um að við værum á réttri leið. það er fátt jafn ótraustvekjandi eins og að keyra á vegi með 50m skyggni þar sem engar stikur eða lí­nur eru á veginum.
En ljúft var það að leggja hausinn á koddann í­ nótt, hann fór ekki heldur þaðan fyrr en um þrjúleytið í­ dag.

Sunnudagur 17. ágúst 2003 kl. 20:02 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

b.l.

Snilldarvefurinn Baggalútur er kominn á skrið aftur með sinn yndislegan húmor, þetta er t.d. frétt sem varð að vera sögð.

Fimmtudagur 14. ágúst 2003 kl. 11:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem

makki er málið

Tryggvi er með þrusuræðu um Apple Macintosh. Verð að segja að eftir þessa lesningu hefur mig aldrei langað eins mikið í­ makka og einmitt núna...

Fimmtudagur 14. ágúst 2003 kl. 11:40 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem netið

fullorðinslí­f

það er undarleg tilfinning að vera ekki að fara í­ skóla í­ haust. þetta er í­ fyrsta skipti á ævinni sem ég fer ekki í­ skóla að hausti og þarf því­ ekki að sanka að mér stí­labókum, hressa upp á pennaveskið, kaupa nýja penna (þó það sé nú alltaf gaman). þó ég sé ekki með "eðlilega" vinnu (one who pays) þá er alltaf nóg að gera. ég fékk til dæmis verkefni í­ dag (one that pays) sem er mjög spennandi og verður vonandi upphaf að nýjum og fleiri spennandi verkefnum. þegar maður er búinn að ákveða hvað maður ætlar að gera í­ lí­finu þýðir lí­tið að fara að vinna á macdonalds.

Þriðjudagur 12. ágúst 2003 kl. 14:49 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 1

málingartörnin

það er svipuð málningartörn hjá okkur eins og Tryggva þessa dagana. í­ gær og fyrradag hjálpaði ég tengdó að mála og snurfusa í­búðina Lilju (systur óla) og Svavars og um helgina verður mega málningarhelgi hjá óla og Evu. það er allsstaðar verið að gera hreiður.

Laugardagur 09. ágúst 2003 kl. 10:00 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft

tetris

í­ nótt andaðist gullfiskurinn minn, tetris, úr óþekktri veiki. blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á að gefa mér nýjan gullfisk.

Laugardagur 09. ágúst 2003 kl. 09:54 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem lífið sjálft / 3

frí­ið búið

Við komum heim í­ fyrrakvöld úr ákaflega vel heppnaðri vikuferð til danmerkur. það sem ég er eiginlega ánægðust með er sólbrúnkan sem við náðum okkur í­, að ví­su með glæsilegu bóndafari en so what.
í­ gær var sí­ðasti dagurinn hans óla í­ sumarfrí­i, fyrir utan þann tí­ma sem hann er búinn að taka frá í­ gæsaveiði, þannig að hann skrapp í­ golf á meðan ég var heima að taka upp úr töskunum og þvo, áhugavert hlutskipti.
En núna tekur vinnan við á fullu, ég er að klára stórt verkefni og byrja á nokkrum smáum en vonandi fer draumurinn um að komast inn á auglýsingastofu að rætast. þetta fer að verða ágætt af "frí­i".

Fimmtudagur 07. ágúst 2003 kl. 21:20 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem 2

á ferð og flugi

Núna erum við komin til Odense til Munda og Svanhildar. Veðrið er búið að vera vægast sagt brilliant og engin ástæða til að vera að fara í­ meira en hlýrabol allan daginn. Hótelið sem við gistum á fyrstu þrjár næturnar var ágætt, ekkert fansí­ svosem en hreint og góð sturta, og rétt hjá miðbænum. Erum búin að vera við Strikið í­ Köben í­ fyrradag, gær og í­ dag. á miðvikudaginn fórum við í­ smá ferð á í­slendingaslóðir og tókum metro í­ dýragarðinn. í­ gær, fimmtudag, fórum við Sightseeingbus um borgina og svo á eftir fórum við í­ aðra túristaferð siglandi. í­ dag tékkuðum við okkur út af hótelinu, fórum svo með Nirði, félaga óla úr skólanum og gí­tarleikara Bjórbandsins í­ Kristianí­u sem er mjög áhugaverður staður. Eftir það stukkum við upp í­ DSB og erum komin hér til Odense þar sem grillið er heitt og bjórinn kaldur.

Föstudagur 01. ágúst 2003 kl. 17:55 / Varanleg vefslóð
Flokkað sem