sunshine and lollipops

þegar ég vaknaði í­ morgun ákvað ég að taka smá sundsprett í­ vesturbæjarlauginni enda var veðrið alveg að ýta undir það. ég tók sundbolinn og gleraugun með mér og þegar ég var búin að synda hálfan km hætti ég, bæði vegna þess að sólin var orðin alveg steikjandi og einhver kella tók upp á því­ að kenna 10 ára syni sí­num að synda á brautinni sem ég var á þannig að þau syntu samhliða (!). En það var svo gott veður að ég ákvað að leggjast á bekk í­ smá sólbað, örlitla stund.
þar hitti ég Gumma Frey og við rifjuðum upp að þetta væri eins og í­ gömlu góðu dagana á Cancun og þetta væri næstumþví­ alveg eins, það vantaði bara barinn.
En svo fór Gummi og ég hélt áfram að sóla mig, eftir smástund kom Jón Gnarr og settist í­ stólinn þar sem Gummi var áður og horfði í­ kringum sig, ég er viss um að hann var að hugsa eitthvað fyndið, eða að horfa á konuna sem lá allsber að ofan á einum bekknum búin að löðra sig í­ olí­u. Skál fyrir henni.
þegar ég fór upp í­ klefa (tæplega 3 tí­mum eftir að ég kom) sá ég að ég var eins og rassskelltur tómatur í­ framan enda asni að hafa ekki tekið með mér sólvörn, ég ætlaði nefnilega ekkert í­ sólbað.


Miðvikudagur 16. júlí 2003 kl. 15:45
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 270 færslur.

/ Álit

Tryggvi R. Jónsson:

Ob ob ob ... eitthvað er seinni linkurinn í myndasafnið hjá mer bilaður, hið rétta í stöðu er http://www.pjus.is/trigger/gallery/utskriftarferd
;-)
Annars finnst mér Gummi Freyr alltaf koma best út svona: http://www.pjus.is/trigger/gallery/utskriftarferd/mex07
með stóran hatt og drykk í hönd...

16.07.03 23:15


daia:

úbbbbs, búin að laga ;)

17.07.03 14:35