fressen
ég er orðin ókrýndur meistari í F1 2002 í ps2, rúllaði upp hverri brautinni á fætur annarri annaðhvort sem meistari schumi eða finninn ungi. það er ekkert svo leiðinlegt að vera lasin. Núna var ég hins vegar að fatta að það er kominn dagur, meiraðsegja kvöldmatur og þar sem óli er einhversstaðar að bíta gras þá er ég svona að pæla í því hvað ég eigi eiginlega að borða. Mér dettur helst í hug að renna á thai matstofu en þar er víst hægt að fá allsskonar dýrakjöt kryddað með efnum sem að losa um allar stíflur í hausum. já ég held það bara. óli hefur andúð á austurlenskum mat þessa dagana þannig að núna er tækifærið.
Flokkað sem lífið sjálft. Þar eru 238 færslur.
/ Álit
F1 vantar nýjan ökuþór eftir að Hakkinen fór að sinna familíunni. Þú ert kannski arftaki hans að titlinum Finninn Fljúgandi?
hmm... það er spurning, allavega er málið að fá sér F1 2003 á næstunni.. ekkert ógurlega leiðinlegir leikir. :p



RSS veita