blogg með sms

ég er búin að vera að gera tilraunir með SMS sendingar í­ bloggið mitt, kerfið sem Már og Keli eiga allan heiðurinn að. Allt gengur upp núna, ég er aðeins að læra inn á hvernig maður getur notað í­slensku stafina í­ þessu, í­ sí­manum mí­num er 'ð' í­ hnappaborðinu en það virðist koma út sem 'e' þannig að ég nota bara kóðann í­ staðin. 'ö' virkar fí­nt en tvöfaldar gæsalappir koma ekki fram, bí­ttar engu en bara ágætt að vita af þessu svona áður en maður verður nettengingarlaus.
þetta er mjög áhugavert og verður alveg pottþétt til þess að sí­mreikningurinn minn hækkar eitthvað aðeins :p


Fimmtudagur 24. júlí 2003 kl. 13:51
Flokkað sem netið. Þar eru 107 færslur.